Alþjóðlega WEFTA-ráðstefnan verður haldin í Reykjavík dagana 12.–16. október 2026.
WEFTA er alþjóðlegt samstarfsnet í bláa lífhagkerfinu með áherslu á sjávarútveg, lagareldi, matvælafræði og vinnslutækni. Matís, og áður Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, hefur tekið virkan þátt í starfi WEFTA frá því um 1970.
Ráðstefnan leiðir saman vísindafólk, nemendur og fulltrúa atvinnulífsins og hefur um áratuga skeið verið mikilvægur vettvangur fyrir miðlun þekkingar og þróun norræns og evrópsks samstarfs.
Ráðstefnan stendur yfir dagana 12.–16. október. Innritun fer fram 12. október og sjálf ráðstefnudagskráin, með fyrirlestrum og málstofum, verður 13.–15. október. Dagskránni lýkur síðan 16. október, en þá verður boðið upp á skoðunarferð í nágrenni Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar: https://wefta2026.com/

