Offita er alvarlegt heilsufarsvandamál sem hefur áhrif á líf mörg hundruð milljón einstaklinga í hinum Vestræna heimi. Hún einkennist af miklu magni fitu sem safnast upp í fitufrumum í fituvef, en fituvefurinn gegnir einnig mikilvægu hlutverki í innkirtlavirkni líkamans. Þessi virkni getur orðið fyrir truflunum af völdum þessarar fituuppsöfnunar og þannig stuðlað að þróun ýmissa efnaskiptasjúkdóma líkt og sykursýki. Þar að auki hefur framgangur sykursýki verið tengdur uppsöfnun sindurefna í líkamanum sem einnig er þekkt að geti valdið öðrum hrörnunarsjúkdómum.
Markmið þessa meistaraverkefnis var að kanna áhrif útdrátta úr Fucus vesiculosus og furutrjáberki (Pinus spp) á fituuppsöfnun í 3T3-L1 fitufrumumódeli, hindrandi áhrif þeirra gegn α-glucosidase ásamt andoxunarvirkni. Þessar plöntur eru rík uppspretta lífvirkra efna, aðallega fjölfenóla og fjölsykra. Þrír þangútdrættir hindruðu fituuppsöfnun í 3T3-L1 frumunum án þess að hafa áhrif á lifun þeirra og sýndi F. vesiculosus vatnsútdráttur bestu virknina með 35% hindrun í styrkleika 0,1 mg/mL. F. Vesiculosus sýruútdráttur sýndi einnig góða virkni með 19% hindrun í sama styrkleika. Þá höfðu bæði þang- og furutrjábarkar útdrættir sterka andoxunarvirkni svo og hindrunarvirkni gegn α-glucosidase. Furutrjábörkurinn hafði mestu andoxunarvirknina í ORAC með 2869 µmol TE/g og sami útdráttur hafði góða hindrunarvirkni gegn α-glucosidase með 1,3 µg/mL IC50 gildi.
Frekari rannsókna er þörf til að bera kennsl á þá ferla sem hindra fituuppsöfnunina. Einnig geta in vivo rannsóknir veitt upplýsingar um hvort þessara áhrifa gæti einnig í lifandi verum. Þetta gæti leitt til þróunar og framleiðslu á fæðubótarefni sem hægt væri að nota til að koma í veg fyrir offitu og þá efnaskiptasjúkdóma sem henni tengjast.
