Stofnstærð Atlantshafsþorsks, sem áður veiddist í miklu magni í norðurAtlantshafi, hefur minnkað á síðustu áratugum og nú eru veiðar úr flestum stofnum takmarkaðar eða bannaðar. Aukin eftirspurn eftir þorski hefur orðið til þess að áhugi fyrir þorskeldi hefur aukist til muna. Ótímabær kynþroski hefur neikvæð áhrif á arðsemi þorskeldis vegna þess að við hrygningu hægir á vexti og holdgæði verða lélegri. Eldisþorskur verður kynþroska fyrr en villtur þorskur. Þeir umhverfisþættir sem hafa mest áhrif á tímasetningu kynþroska eru, auk fæðuframboðs, hitastig og ljóslota. Reynt hefur verið að koma í veg fyrir kynþroska hjá þorski með langri ljóslotu (löngum degi) síðari hluta árs. Talið er að þorskur noti stytting dagslengdar að hausti sem merki um að hefja kynþroskaferilinn. Því er hugsanlegt að hægt sé að koma í veg fyrir ótímabæran kynþroska þorsks með því að viðhalda löngum degi síðari hluta árs. Í þessu verkefni voru könnuð áhrif af ”Cold Cathode Lights” í kvíum. Ljósið frá þessum lömpum berst vel í gegnum vatn og er á bylgjusviði sem þorskarnir eru næmastir fyrir. Ljósin voru notuð til að lengja ljóslotu í eldiskvíum að vetri til og koma þannig í veg fyrir kynþroska vegna styttingu dags síðari hluta árs. Ljósameðhöndluninni var beitt í tvö ár. Niðurstöður verkefnisins sýna að með ljósameðhöndlun er hægt að seinka kynþroska í 1 til 2 mánuði auk þess að draga úr tíðni kynþroska hjá hængum og koma alveg í veg fyrir kynþroska hjá hrygnum fyrra árið. Fiskar sem fengu ljósameðhöndlun urðu 11% stærri en þeir fiskar sem aldir voru við náttúrulegt ljós. Þótt ljósameðhöndlunin seinkaði kynþroska og bætti vöxt er ávinningurinn af henni vart
nægilegur til þess að gera notku CCL hagkvæma.
