Greining eitraðra og hættulausra efnaforma arsens í fiskimjöli / Determination of toxic and non-toxic arsenic species in Icelandic fish meal

Í lífríkinu er mikið til af arseni í lífrænum efnasamböndum sem og á ólífrænu formi og hafa fundist meira en 50 náttúruleg efnaform af arseni. Sjávarfang inniheldur frá náttúrunnar hendi háan styrk heildararsens miðað við t.d. landbúnaðarafurðir. Stærsti hluti arsens í sjávarfangi er hins vegar bundið á lífrænu formi sem kallast arsenóbetaníð, sem er talið hættulaust. Önnur form arsens í sjávarafurðum eru að jafnaði til staðar í lægri styrk, m.a. ólífrænt arsen (arsenít og arsenat) sem er eitrað og fer sjaldan yfir 3% af heildarstyrk arsens í fiski og krabbadýrum. Formgreining arsens í sjávarfangi er mikilvæg vegna þess að upptaka (bioavailability) og eiturvirkni arsens er háð því á hvaða efnaformi það er. Nýlega kallaði EFSA (European Food Safety Authority) eftir upplýsingum um ólífræn og lífræn efnaform arsens í fæðu og eftir efnagreiningaraðferðum til að greina ólífrænt arsen. Í þessari ritgerð koma fram niðurstöður og mat á mælingum á heildarstyrk í yfir 100 sýnum af íslensku fiskimjöli. Meðal annars var skoðað hvort árstíðamunur á heildarstyrk arsens væri til staðar. Sýnin voru fyrst brotin niður með örbylgjun og því næst mæld á ICP massagreini, ICP-MS (Inductively coupled plasma mass spectrometry). Til að meta hvaða efnaform arsens eru til staðar í mjölinu var fyrst þróuð þrískipt úrhlutunaraðferð. Síðan var áhersla lögð á greiningu eitraðs ólífræns arsens. Áður birt alkalí-alkóhól úrhlutunaraðferð, til að greina ólífrænt arsen, var aðlöguð og sýnin mæld með HPLC búnaði tengdum við ICP-MS. Í ljós kom að arsenóbetaníð var í öllum tilfellum ríkjandi efnaform arsens. Ólífrænt arsen reyndist vera undir fjórum prósentum af heildarstyrk í tólf mældum fiskimjölssýnum. Aftur á móti kom í ljós, þegar annarri efnagreiningartækni (HPLC-HG-AFS) var beitt á sýni af stöðluðu viðmiðunarefni (certified reference material), að styrkur ólífræns arsens mældist þrisvar sinnum lægri. Reyndist alkalí-alkóhól úrhlutunaraðferðin gefa sannfærandi efri mörk á styrk ólífræns arsens. Niðurstöðurnar sýna ennfremur að ekki er nóg að reiða sig á eina aðferð þegar efnaform arsens eru greind og magngreind. Aukinheldur sýna þær nauðsyn á vottuðum styrk ólífræns arsens í stöðluðu viðmunarefni til að kanna áreiðanleika efnagreiningaraðferða. Þörfin fyrir frekari þróun efnagreiningaaðferða á þessu sviði er brýn.

Skrunaðu efst