Notkun ensíma til framleiðslu bragðefna úr þara / Edible seaweed for taste enhancement and salt replacement by enzymatic methods

Á heimsvísu hafa heilbrigðisyfirvöld mælt með minni saltneyslu til þess að minnka áhættu á lífstílstengdum sjúkdómum svo sem of háum blóðþrýsting. Salt hefur bragðaukandi áhrif á matvæli og þegar saltmagnið er minnkað dregur einnig úr bragði. Í þörungum eru að finna mörg steinefni fyrir utan natríum, svo sem kalíum og magnesíum, sem gefa honum sitt náttúrulega salta bragð. Sumar þarategundir innihalda einnig önnur bragðaukandi efni sem geta bragðbætt matvæli. Mild ensímmeðhöndlun getur losað um bragðaukandi efni, svo sem prótein, peptíð, amínósýrur og afoxandi sykrur, sem hægt er að nota til þess að búa til bragðefni úr þörungum ætlað til þess að bragðbæta saltminni matvæli.

Markmið verkefnisins er að þróa feril til þess að framleiða bragðefni úr stórþörungunum Fucus vesiculosus, Ascophyllum nodosum og Saccharina latissima með því að nota milda ensímmeðhöndlun.

Nokkur mismunandi ensím voru prófuð á þörungana við mismunandi aðstæður og ýmis efnafræðileg próf framkvæmd á afurðunum. Greiningar á hlutlausum og afoxandi sykrum, próteingreining, SDS gel og þunnlagsskilja (e. thin layer chromatography) auk aminósýrugreininga voru notaðar til þess að velja þá þörungategund, ensím og aðstæður ensímmeðhöndlunar sem gaf afurð með mestu bragðaukandi áhrifin.

Hannaður var ferill fyrir framleiðslu bragðefna úr þörungum sem hægt er að skala upp fyrir iðnaðarframleiðslu. Valið var það hráefni, ensím og aðstæður við ensímmeðhöndlun sem gáfu bestu afurðina. Verkefnið sýndi fram á að notkun ensíma til þess að búa til bragðefni úr þörungum er vænleg og nýstárleg leið til framleiðslu á náttúrulegri vöru til notkunar í saltminni matvæli.

Skrunaðu efst