Rusl í hafi er vaxandi vandamál sem getur haft slæm áhrif á vistkerfi og efnahagskerfi heimsins. Víða er skortur á stöðluðum rannsóknum sem meta magn rusl í hafi sem rekur á land og á þetta einnig við um Ísland. Í rannsókninni sem kynnt er hér var aðferðarfræði OSPAR fylgt og voru mynduð 26 snið í sex mismunandi fjörum við norðanverðar, vestanverðar og sunnanverðar Hornstrandir og rusl metið í þessum sniðum. Niðurstöðurnar sýndu að 95.4% rusls var plast. Að meðaltali fundust 104 hlutir í hverju 100 x 10 m sniði sem vó að meðaltali 10.4 kg. Út frá þessum niðurstöðum var reiknað út að u.þ.b. 32,600 hlutir sem vega u.þ.b. 4300 kg eru dreifðir um norður, suður og vestur strandir Hornstranda. Ákveðnir bendihlutir voru notaðir til að gefa vísbendingu um uppruna ruslsins og var fiskiðnaður talin stærsta uppspretta rusl í hafinu kringum Ísland. Merkingar og tegund ruslsins benti einnig til því að uppsprettan lægi hjá íslenskum fiskiðnaði. Settar eru fram tillögur að breyttum stjórnsýsluháttum sem eru byggðar á árangursríkri stjórnun erlendis og aðlagaðar að íslenskum aðstæðum. Mælt er með notkunar á niðurbrjótanlegum fiskveiðibúnaði sem langtímalausn. Einnig er mælt með að merkja veiðibúnað ásamt endurgreiðslu vegna skila á rusli, betri hafnaraðstöðu til móttöku rusls, menntun og strandhreinsunum.
