Polycyclic Aromatic Hydrocarbons in Mussel from Iceland – Food Safety and environmental aspect

Fjölhringa arómatísk vetniskolefni (PAH efni) eru efnasambönd sem geta komist í fæðukeðju manna og haft skaðleg áhrif á lýðheilsu. PAH efni er flokkur efna úr arómatískum kolefnum sem myndast við bruna lífrænna efna, bæði af mannavöldum og með náttúrulegum hætti. Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (EPA) hefur valið sextán PAH forgangsefni sem eru talin sérstaklega skaðleg heilsu manna og umhverfinu. Fyrir þessum sextán PAH forgangsefnum er skimað í umhverfisvöktun til þess að meta magn óæskilegra PAH efna, meðal annars í matvælum.

Markmið verkefnisins var að mæla magn PAH efna í kræklingi (Mytilus edulis) og skoða þróun þeirra við strandlengju Íslands á árunum 1992-2011. Skoðuð voru sýni frá þremur stöðum, frá Hvassahrauni í Hafnarfirði, Úlfsá í Skutulsfirði og Brekku í Mjóafirði, sem áður höfðu verið notuð í mengunarvöktun lífríkis sjávar við Ísland. Í efnagreiningunum var notaður úrdráttur með örbylgjum og kísilgelsúlur til þess að hreinsa sýnin. Að lokum voru þau aðgreind og magngreind með GC-MS.

Í ritgerðinni er Σ16PAH skilgreind sem summa PAH forgangsefnanna sextán. Niðurstöðurnar sýna að styrkur þeirra í Hvassahrauni er tiltölulega lágur og stöðugur yfir tímabilið en hæsta gildi Σ16PAH mældist 345 ng/g á þurrvigt í sýni frá 1997. Í Úlfsá var styrkurinn einnig tiltölulega lágur og stöðugur en hæsta gildi Σ16PAH mældist 264 ng/g þurrvigt í sýni frá árinu 2000. Í Mjóafirði eykst styrkur PAH efnanna á tímabilinu. Styrkurinn jókst árið 2000 og svo aftur árin 2007-2010 frá tiltölulega stöðugu bakgrunnsgildi. Hæsta gildi Σ16PAH mældist 1532 ng/g þurrvigt árið 2010. Líklega má rekja hækkunina í Mjóafirði til aukinna umsvifa í firðinum í tengslum við fiskeldi.

Niðurstöður verkefnisins gefa vísbendingu um að íslenskt strandsvæði sé tiltölulega hreint með tilliti til PAH-efna og því kjörið til nýtingar á sjávarfangi og annarra lífvera sem lifa við strendurnar.

Skrunaðu efst