Ready to eat meals enriched with omega-3 fatty acids – Product development and consumer study

Markfæði (e. functional food) er heiti notað yfir þau matvæli sem innihalda næringarefni og/eða önnur efni sem hafa jákvæð áhrif á heilsu manna umfram önnur matvæli. Eins og til dæmis matvæli sem innihalda lífvirk efni, annaðhvort náttúrlega eða þeim hefur verið bætt í matvælin. Markaðurinn fyrir slíkar vörur er ört vaxandi í heiminum og virðist vera að neytendur sækist í auknu mæli eftir slíkum vörum til að bæta heilsu eða fyrirbyggja sjúkdóma. Markaðurinn fyrir ómega-3 viðbætt matvæli fer ört stækkandi í Evrópu, en á norrænum markaði eru sjávarréttir auðgaðir með ómega-3 eða öðrum sambærilegum lífvirkum efnum ekki þekktir. Rannsóknir hafa engu að síður sýnt að neytendur eru jákvæðir gagnvart auðguðum sjávarréttum, sérstaklega þar sem ómega-3 fitusýrum hefur verið bætt út í réttina.

Markmið þessa verkefnis var að þróa tilbúna rétti auðgaða með ómega-3 fitusýrum sem ætlunin er að markaðssetja sem hluta af nýrri framleiðslulínu og ná til heilsumeðvitaðra neytenda. Hluti af vöruþróuninni voru athuganir á gæðum og geymsluþoli réttanna. Ennfremur var markmiðið að rannsaka geðjun og viðhorf neytenda til þeirra rétta sem auðgaðir voru með ómega-3 fitusýrum í samanburði við samskonar rétti án viðbætts ómega-3 eftir endurtekna neyslu í fjórar vikur.
Vöruþróunin í verkefninu byggir á aðferðafræði State-gate vöruþróunarferilsins. Þrjár tilraunir voru gerðar til að auðga rétti með ómega-3 fitusýrum. Markmið tilraunar 1 sem var fortilraun var að kanna hvort og hversu mikið væri mögulegt að bæta af fiskiolíu í fiskibollur. Niðurstöður skynmats sýndu fram á að mögulegt væri að auðga fiskibollurnar með allt að 8% fiskiolíu. Í næstu tilraun voru þróaðar nokkrar gerðir rétta þar sem ómega-3 olíu (blanda af fiskiolíu og ólífuolíu) var bætt í réttina í því magni sem samsvara því að uppfylla ráðlagða dagsskammta af ómega-3 fitusýrunum. Mat á réttunum sýndi fullnægjandi árangur og því var farið í þriðju tilraunina þar sem framleiddar voru sex mismunandi frumgerðir af ólíkum tilbúnum réttum með og án ómega-3. Skynmat og efnamælingar voru notaðar til að kanna geymsluþol og gæði frumgerðanna sex eftir geymslu í frysti eftir 0, 3 og 6 mánuði. Jafnframt var rannsakað viðhorf og geðjun neytenda á frumgerðunum eftir endurtekna neyslu yfir fjögurra vikna tímabil. Þátttakendurnir fengu sex máltíðir á viku í fjórar vikur. Alls tóku 77 manns, 50 ára og eldri þátt í neytendakönnuninni og þar af fengu 50 manns rétti án ómega-3 og 27 þátttakendur fengu samskonar rétti sem auðgaðir voru með ómega-3. Í upphaf rannsóknarinnar svöruðu þátttakendur spurningum um fiskneyslu, fiskinnkaup, neyslu fæðubótarefna og hvort þeir skoði upplýsingar á umbúðum matvæla. Í fyrstu og fjórðu viku neytendakönnunarinnar svöruðu þáttakendur öðrum spurningarlista samhliða neyslu máltíðanna um geðjun á réttunum sex.

Auðguðum réttirnir höfðu hærra fituinnihald í samanburði við hefðbundnu réttina vegna ómega-3 olíunnar. Niðurstöður skynmats sýndu fram á að minnsta kosti 6 mánaða geymsluþol fyrir flesta réttina.

Að meðaltali keyptu þátttakendur í báðum hópum fisk einu sinni í viku og tilbúna fiskrétti fimm til átta sinnum á ári. Almennt geðjaðist þáttakendum vel að réttunum, bæði auðguðum og hefðbundnu. Einhver munur var á geðjun milli auðguðu réttanna og þeirra hefðbundnu, en mismikið eftir réttum. Geðjun á máltíðunum minnkaði ekki eftir endurtekna neyslu í fjórar vikur að undanskildum einum rétt. Löngunin í að borða réttina var svipuð í viku 1 og viku 4 og þá sértsaklega þegar þátttakendur voru beðnir um að íhuga neyslu aftur eftir ákveðið langan tíma.

Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að auðgun tilbúinna rétta með ómega-3 fitusýrum sé raunhæfur kostur en það sýndi sig jafnframt að ómega-3 olían hafði mismunandi áhrif á bragð réttanna og að sumar uppskriftirnar hentuðu betur en aðrar. Þessar niðurstöður þarf að hafa í huga við frekari þróun á tilbúnum vörum með viðbættu ómega-3 fitusýrum.

Skrunaðu efst