Bakteríuflóra á fyrstu stigum lúðueldis / The bacterial community during early production stages of intensively reared halibut (Hippoglossus hippoglossus L.)

Mikil og skyndileg afföll verða á fyrstu stigum eldis sjávartegunda fiska og gefa rannsóknir vísbendingar um að bakteríuvöxtur hafi víðtækari áhrif á vöxt og afkomu lirfa
en áður er þekkt. Bakteríur nærast á lífrænum efnum og úrgangi í eldiskerfunum og geta óæskilegar tegundir því náð miklum fjölda á skömmum tíma. Áhrif einstakra tegunda eru þó lítt þekkt en mikilvægt er að eldisumhverfi lirfanna sé stöðugt og sem minnstar breytingar verði á þessum viðkvæmu stigum eldisins.

Bakteríuflóra hrogna og lirfa lúðu (Hippoglossus hippoglossus L.), eldisumhverfis þeirra og fæðudýra var kortlögð með ræktun á næringarætum svo og með sameindalíffræðilegum aðferðum (denaturing gradient gel electrophoresis, DGGE), sem ekki krefjast ræktunar bakteríanna. Ennfremur voru könnuð áhrif mismunandi meðhöndlunar á samsetningu bakteríuflóru svo og gæði hrogna og lirfa. Þetta var gert með samanburði á áhrifum skyggingar eldisvökva í kerjum ýmist með þörungum eða leir, meðhöndlun fóðurdýra lirfa með vatnsrofnum fiskipróteinum og meðhöndlun hrogna og fóðurdýra lirfa með blöndu þriggja baktería (Pseudoalteromonas elyakovii, Vibrio spp. og V. splendidus), sem einangraðar voru úr meltingarvegi lirfa í kerjum með góða afkomu.

Bakteríuflóra kviðpokalirfa reyndist fjölbreyttari en áður hefur verið sýnt fram á og samband fannst á milli kjaftgalla og fjölda ræktanlegra baktería í lirfum. Vibrio tegundir
voru ríkjandi í meltingarvegi lirfa eftir að frumfóðrun hófst. Einnig voru _-Proteobacteria einangraðar sem hluti af ríkjandi flóru lirfa en þessi hópur hefur ekki áður verið staðfestur í lúðu. Bakteríuflóra í lifandi fóðurdýrum lirfa reyndist aðeins endurspeglast að hluta til í meltingarvegi lirfa eftir fyrstu vikuna í fóðrun. Einungis lítill hluti tegunda í ákaflega fjölbreyttri bakteríuflóru lirfa og fóðurdýra þeirra reyndist vera ræktanlegur en vísbendingar eru um að ríkjandi hluti flórunnar geti að stórum hluta verið ræktanlegur.

Notkun leirs í stað þörunga við nauðsynlega skyggingu eldisumhverfis lirfa hafði ekki áhrif á vöxt, gæði eða afkomu lirfa í startfóðrun en veruleg fækkun varð á fjölda baktería í eldisumhverfi lirfa. Meðhöndlun með stofnum sem einangraðir voru úr ríkjandi flóru í meltingarvegi lirfa úr kerum með góða afkomu hafði ekki áhrif á lifun eða gæði hrogna en fóðrun með bakteríumeðhöndluðum fæðudýrum leiddi til aukinnar lifunar og marktæk aukning var í vexti lirfanna í annarri af tveimur tilraunum sem framkvæmdar voru.

Meðhöndlun fæðudýra með vatnsrofnum fiskipróteinum örvaði ósérhæft ónæmi lirfa, þar sem framleiðsla lysósíms var aukin og meiri dreifing var á C3 þætti komplement kerfisins í vefjum. Meðhöndlunin hafði hins vegar hvorki áhrif á bakteríuflóru né lifun lirfa. Meðfætt IgM greindist í lirfum við upphaf startfóðrunar rúmum mánuði eftir klak en meðfætt IgM hefur ekki áður verið greint í lúðulirfum.

Skrunaðu efst