Breytileiki í fituinnihaldi og eiginleikum þorsks eftir árstíma / Seasonal variation of fatty acid composition of cod flesh
Í skýrslunni eru teknar saman niðurstöður mælinga á efnainnihaldi lifrar og þorskvöðva eftir árstíma og veiðislóð. Niðurstöður benda til þess að árstíðabundnar sveiflur í fituinnihaldi vöðva séu tiltölulega litlar. Öðru máli gegnir um lifur, fituinnihald hennar reyndist lægst síðari hluta vetrar og að vori. Á sama tíma var vatnsinnihald hæst. Breytingar í efnasamsetningu lifrar voru taldar tengjast þeim sveiflum sem verða í hegðunarmynstri og líkamsstarfsemi fisksins í kringum hrygningu.
The report summarizes the results from measurements on chemical composition of liver and muscle of cod as affected by fishing grounds and seasonal variation. The results indicate that seasonal fluctuations in fat content of the muscle are relatively low. On the contrary, fat and water content in liver, varied with season. The fat content was lowest late winter and in spring. At the same time, the highest water content in liver was observed. These changes were explained by changes in behaviour and physiological functional of the fish in relation to the reproductive cycle.