Erfðabreytileiki laxa í Laxá í Aðaldal var skoðaður yfir tíma. Unnið var með erfðasýni sem tekin voru 1980, 2004, 2022 og 2023 í Laxá. Sýnin voru arfgerðargreind fyrir 14 tafsraðir frá SalSea arfgerðarsettinu. Ljóst er að breytingar hafa orðið á erfðasamsetningu í Laxá í Aðaldal. Niðurstöður sína að meðal arfblendni hefur breyttst lítilega en arfblendni fyrir einstök erfðaset hefur breyttst nokkuð. Erfðabreytileiki mældur sem fjöldi samsæta á erfðaseti eða sem fjöldi einkasamsæta á erfðaseti hefur aukist í sýnunum frá 2022 og 2023. Hinsvegar er ljóst að mat á virkri stofnstærð (æxlunarstofnstærð á ári) hefur minnkað yfir tíma sérstaklega í nýjasta sýninu frá 2023. Þá er ljóst að stofngerð laxa í Laxá hefur breyttst, þannig flokkast færri laxar til Laxár nú en áður og að sama skapi eru fleiri laxar greindir í ánni frá öðrum stofnum/ám. Mikil ræktun hefur átt sér stað í Laxá síðan 1984 hinsvegar er ljóst að uppruni undaneldisfisks er óþekktur. Vísbendingar eru um að ræktun sé að auka skyldleika í stofninum þó svo að nokkur aukning hafi orðið í veiði síðasta ár.
Genetic diversity in Atlantic salmon in river Laxá
Genetic diversity of Atlantic almon in river Laxá was investigated over time. Samples were collected in the river Laxá in 1980, 2004, 2022 and 2023. The samples were genotyped with the SalSea microsatellite marker set. Changes have occurred in genetic make up of salmon of river Laxá. Mean heterozygosity has only changed insignificantly but larger changes are seen for individual markers. Genetic diversity as number of alleles per loci and the number of private alleles per loci have increased over time. However effective population size in year has declined especially for the sample in 2023. The stock structure in the river has also changed as fewer salmon are traced back to river Laxá than in earlier samples. There has been large effort in supplementing the stock from hatchery fish from the river since 1984. However, the origin of the hatchery fish is undetermined. There is observation that the supplemental program in increasing relatedness in the stock although some increase has been seen in the catch in the river for last year.
Unnið fyrir Landsvirkjun
