Skyldleiki botndýrasamfélaga í Ísafjarðardjúpi
Þekking á botndýralífi á grunnslóð við Ísland er lítil, bæði hvað varðar við náttúrulegar aðstæður og við álag frá t.d. fiskeldi. Þekking er einnig ábótavant hvernig botndýrasamfélagsgerðir svara álagi frá fiskeldi en ein rannsókn hefur reynt að svara því varðandi lítið álag. Til að átta sig á hvaða botndýrasamfélagsgerðir eru við náttúrulegar aðstæður og hverjar eru þegar um álag frá mengun er að ræða, þá þarf að skoða skyldleika botndýralífs innan og utan svæðis. Með því móti er hægt að átta sig á hvaða dýrahópar eru ríkjandi við svipaðar aðstæður. Í þessari rannsókn eru notuð gögn um botndýralíf í Ísafjarðardjúpi sem er að mestu tilkomin vegna fiskeldis í fjörðunum. Einnig er gerð botndýrathugun í fjörðum sem gætu verið hentugir fyrir fiskeldi, en eru enn sem komið eru einungis undir álagi frá náttúrulegum aðstæðum. Verkefnið er hluti af stærra verkefni „Íslenskir firðir: Náttúrulegt lífríki Ísfjarðardjúps og þolmörk mengunar“ og er það styrkt af Verkefnasjóði Sjávarútvegsins.
Knowledge about the benthic live in shallow waters around Iceland is poor, both regarding natural circumstances and when there is pressure from aquaculture. Knowledge is also poor about how benthic communities respond to pollution from aquaculture. This study shows the relations between research stations with regards to kinship between found indicative species.