ÞörungaPrótein: ensím-hvötuð einangrun próteina úr stórþörungum

Markmið verkefnisins er að þróa iðnaðarferil til einangrunar próteina úr stórþörungum.  Ferillinn mun byggja á notkun ensíma sem vísindamenn Matís hafa nýlega borið kennsl á og skilgreint, og eru sérhæfð til niðurbrots fjölsykra stórþörunga.

Vísindaleg þekking á ensímum af þessum toga er almennt lítil og þau almennt ekki til á markaði. Í því felst tækifæri til nýsköpunar og þróunar hagnýtra ferla á þeim byggðum. Í verkefninu munum við þróa aðferð sem byggir á meðhöndlun stórþörunga með ensímunum með það fyrir augum að brjóta niður lífmassann og auðvelda þannig prótein útdrátt í kjölfarið. Prótein-afurðinni sem verður til er ætlað að nýtast sem matvæli. Hana mætti t.d. selja sem fæðubótarefni sem prótein duft, eða nýta til þróunar nýrra matvara þar sem afurðinni er blandað í matvæli s.s. til framleiðslu prótein-drykkja, orkustykkja, o.fl. Slíkar afurðir kynnu að vekja athygli og vinsældir neytenda, m.a. fyrir þær sakir að próteinin eru einangruð úr uppsprettu sem sækja má með sjálfbærum hætti og er vegan.

Scroll to Top