Nýting fjaðra og annarra hliðarafurða úr kjúklingaframleiðslu

ChickPro – nýting fjaðra og annarra hliðarafurða úr kjúklingaframleiðslu í verðmæltar afurðir, er samstarfsverkefni milli Matís ohf., Ísfugls ehf., Matfugls ehf., Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum sem felur í sér að þróa vinnsluferla sem umbreyta hliðarstraumum (úrgangi) úr kjúklingarækt í verðmætar afurðir. Segja má að áætlaðar niðurstöður verkefnisins séu tvíþátta. Annars vegar verða aðferðir með ensímum og örverum við losun og niðurbrot próteina úr kjúklingaafgöngum þróaðar og bestaðar. Hins vegar verða nýtingamöguleikar afurðanna kannaðir þar sem m.a. veða skoðaðir möguleikar á að nota próteinin í fiskeldisfóður og í próteindrykki fyrir menn. Auk þess verður lífvirkni peptíðanna metin, með sérstakri áherslu á sáragræðslu.

Skrunaðu efst