ARR – Greining arfgerða sem stýra þoli gegn riðu í sauðfé

Verkefnið felst í greiningu á arfgerðum sem hafa áhrif á næmi kinda fyrir riðu. Í Príon prótein geninu (PrP) eru sex einbasa breytileikar (e. single-nucleotide polymorphism, SNP) þekktir sem valda breyttri samsetningu viðkomandi próteins og eru taldir hafa áhrif á næmni fyrir smitefninu sem veldur riðu. Sumir breytileikanna eru taldir auka næmi en aðrir vernda gegn smiti. Í verkefninu mun Matís taka við lífsýnum úr sauðfé frá bændum, einangra úr þeim DNA, magna þann hluta PrP gensins þar sem þessir breytileikar finnast, raðgreina með Sanger raðgreini, og loks greina viðkomandi breytileika.

Verkefnið er liður í stefnu stjórnvalda og bænda sem miðar að útrýmingu sauðfjárriðu á Íslandi. Með kerfisbundnum arfgerðagreiningum og kynbótarækt sem af þeim leiðir má innleiða arfgerðir sem taldar eru vernda gegn riðu í sauðfjárstofninn. 

Áætlaður sýnafjöldi er 180.000 yfir gildistíma samnings.

Skrunaðu efst