Val verndarsvæða í hafi

Þann 4. nóvember fer fram vinnustofa í Hafrannsóknastofnun þar sem farið verður yfir mikilvægi verndar, ráðgjöf að svæðisvernd kynnt, farið verður yfir hlutverk og markmið BioProtect verkefnisins og hvernig verkefnið styður við slíkt ferli.

Ísland hefur skuldbundið sig til að vernda, stýra og vakta að minnsta kosti 30% af hafsvæðum fyrir 2030. Hafrannsóknastofnun hefur það hlutverk að veita ráðgjöf til stjórnvalda um svæði til verndar. En hvernig á að finna slík svæði? Í gegnum BioPrtotect verkefnið er unnið að því að hanna og prófa aðferðir og tól til að svara því. 

BioProtect er fjármagnað af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undir verkefnaáherslu (EU Missions): „Endurheimt hafs og vatna“ (Restore our Ocean and Waters). Markmið BioProtect er að þróa leiðir og aðferðir til hraða árangursríkri vernd og endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni í vistkerfum hafs og stranda.

Eitt helsta tólið sem þróað hefur verið innan BioProtect er skipulagsvefsjá BioProtect Marine Planner sem ætlað er að aðstoða við val svæða. Gögn um líffræðilega fjölbreytni, athafnir manna og verndarmarkmið eru tekin saman sjónrænt svo auðvelt er að átta sig á samhengi milli þeirra. Skipulagsvefsjáin getur metið og lagt tilforgangssvæði. 

Á þessari vinnustofu verður farið yfir mikilvægi verndar, ráðgjöf að svæðisvernd kynnt, farið yfir hlutverk og markmið BioProtect verkefnisins og hvernig verkefnið styður við slíkt ferli. Dr. Oisín Callery frá Háskólanum í Galway á Írlandi mun svo kynna BioProtect Marine Planner.

Vinnustofan fer fram miðvikudaginn 4. nóvember, á milli 13:15-16:00, í húsakynnum Hafrannsóknastofnunar, Fornubúðum 5, í Hafnarfirði.

Dagskrá

TímiErindi
13:15–13:30Christophe Pampoulie, Hafrannsóknastofnun
Setning og inngangur
13:30–14:00Steinunn Ólafsdóttir, Hafrannsóknastofnun
Umgjörð verndarsvæða í hafi við Ísland
14:00–14:30Julian Burgos, Hafrannsóknastofnun
Kortlagning líffræðilegrar fjölbreytni í hafinu við Ísland: aðferðir BioProtect 
14:30–14:50Kaffihlé
14:50–15:20Oisín Callery, Háskólinn í Galway
BioProtect Marine Planner, skipulagstól fyrir hafsvæði
15:20–16:00Christophe Pampoulie
Almennar umræður og fundarslit
Skrunaðu efst