Dagana 12.–16. október fór 54. ráðstefna WEFTA, West European Fish Technologists Association, fram í Reykjavík. Matís hafði veg og vanda af skipulagningu ráðstefnunnar, sem haldin var á Fosshotel Reykjavík undir yfirskriftinni „Bringing the blue bioeconomy forward“.
Alls tóku 88 þátttakendur frá 18 löndum þátt í ráðstefnunni. Vísindadagskráin innihélt yfir 60 erindi ásamt hátt í 29 veggspjöld. Fjallað var um fjölbreytt viðfangsefni tengd sjávarútvegi og bláa lífhagkerfinu, meðal annars vinnslu og gæði sjávarfangs, matvælaöryggi, sjálfbærni og auðlindanýtingu, nýtingu hliðarstrauma, ör- og stórþörunga og vannýttar tegundir. Aðalfyrirlesarar voru Johan Robbens frá ILVO í Belgíu, Hildur Inga Sveinsdóttir frá Matís og Háskóla Íslands og Sveinn Margeirsson frá Brim. WEFTA hefur lengi verið mikilvægur vettvangur fyrir samstarf evrópskra rannsóknastofnana og háskóla á sviði sjávarfangsrannsókna. Ráðstefnan í Reykjavík var sú fimmta sem WEFTA heldur á Íslandi.
Ráðstefnunni lauk með vettvangsferð þar sem þátttakendur fengu innsýn í íslenskt atvinnulíf og nýsköpun tengda sjávarútvegi og bláa lífhagkerfinu. Hópurinn heimsótti Vísi í Grindavík, First Water í Þorlákshöfn og VAXA Technologies, auk þess sem komið var við í Hellisheiðarvirkjun og sýning Orku náttúrunnar skoðuð. Matís þakkar Vísi, First Water og VAXA Technologies kærlega fyrir góðar móttökur og fyrir að gefa þátttakendum tækifæri til að kynnast starfseminni.
Matís þakkar einnig öllum þátttakendum, fyrirlesurum og samstarfsaðilum fyrir vel heppnaða ráðstefnu.


