Matís leitar að metnaðarfullum sérfræðingi til að sinna umsjón og rekstri loftgæðamælitækja. Starfið er fjölbreytt, bíður upp á sveigjanlegan vinnutíma og breytilegt starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kvörðun loftgæðamælitækja á loftgæðamælistöðvum
- Uppsetning og innleiðing nýs tækjabúnaðar
- Grunnviðhald tækjabúnaðar
- Samvinna við sérfræðinga innan og utan Matís
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í verkfræði, efnafræði eða skyldum fögum er skilyrði
- Hæfni í meðferð og viðhaldi rannsóknatækjabúnaðar er kostur
- Hæfni í meðferð og úrvinnslu gagna er kostur
- Góð almenn íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
- Viðkomandi þarf að vera tilbúin/nn/ð í líkamlega vinnu
- Jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og faglegur metnað
- Gott skipulag og sjálfstæði
- Samstarfshæfni og sveigjanleiki
Starfshlutfall er 100%. Viðkomandi mun starfa á Matís við Vínlandsleið 12, Reykjavík en einnig á vettvangi.
Matís er leiðandi í þjónustu og rannsóknum á sviði matvælafræði og líftækni. Hlutverk Matís er að efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs og tryggja matvælaöryggi, lýðheilsu og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Hjá Matís starfar um 90 manna öflugur hópur starfsfólks sem vinnur að þessum markmiðum með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.
Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 25 maí.
Upplýsingar veitir Kristmann Gíslason, fagstjóri Umhverfis og loftgæða, kristmann.g@matis.is

