Fréttir

Fiskirí: Glæsilegt framtak til að reyna að auka fiskneyslu

Um næstu helgi, 15. – 17. sept. verður slegið upp mikilli fiskiveislu á um 80 veitingastöðum út um allt land, og er ætlunin að hvetja bæði unga og aldna til að fara út að snæða sjávarafurðir meðan á hátíðinni stendur. Um er að ræða sérstakt átaksverkefni á sjávarútvegsráðuneytisins í samstarfi við Klúbb matreiðslumeistara á Íslandi. Óhætt er að hvetja landsmenn til að skella sér í fjörið!

Á Dalvík hefur Fiskidagurinn mikili þegar náð að festa sig rækilega í sessi og hefur á fáeinum árum náð að verða ein helsta bæjarhátíð sem haldin er hér á landi og þar hefur verið boðið upp á fisk eins og gestir og gangandi hafa getað í sig látið. Hátíðin Fiskirí er þó ekki bæjarhátíð heldur átaksverkefni á landsvísu, sem hefur þann tilgang að efla neyslu fisks hér á landi.

Líkt og fram kemur í viðtali við Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra í tilefni af Fiskirí-hátíðinni, þá sýna rannsóknir að neysla á fiski hefur farið minnkandi hér á landi undanfarin ár og þá aðallega á meðal unga fólksins. Vegna þessarar þóunar hafi „sjávarútvegsráðuneytið því ákveðið að efna til sérstaks átaksverkefnis um miðjan september undir nafninu Fiskirí. Ætlunin er að vekja athygli landsmanna á öllum aldri á því hversu hollur og góður fiskurinn er og gera fólki ljóst að það getur verið bæði einfalt og fljótlegt að matreiða fisk.“

Þess má geta í þessu sambandi að Rf hefur að undanförnu unnið að sérstöku verkefni í samvinnu við Rannsóknastofu í næringarfræði, Félagsvísindastofnun og SH- þjónustu sem ætlað er að finna leiðir til að efla áhuga ungs fólks á fiski sem heilnæmum kosti.  Verkefnið nefnist Viðhorf og fiskneysla ungs fólks: Bætt ímynd sjávarafurða.

Á vefsíðunni er hægt að lesa meira um þetta þarfa átak og þau veitingahús sem þátt taka í verkefninu.

Fréttir

Nýkomið út rit um rannsóknir á sjávarfangi

Nýlega kom út bókin Seafood research from fish to dish- Qality, safety and processing of wild and farmed fish, sem hefur að geyma fjölda samantekta (abstrakta) frá 35. fundi WEFTA-samtakanna sem fram fór í Antwerpen í Belgíu dagana 19.-22. september 2005. Starfsfólk Rf kemur nokkuð við sögu í þessari stóru bók.

Það er vísindaritaforlagið Wageningen Academic Publishers í Hollandi sem gefur ritið út, sem er mikið að vöxtum eða 567 bls. Bókinni er skipt í átta mislanga kafla, sem fjalla um viðfangsefni á borð við gæði eldisfisks, þekkingu og væntingar neytenda sjávarafurða, fullnýtingu sjávarafla o.fl.

Sérfræðingar Rf voru aðal- eða meðhöfundar í eftirfarandi erindum sem flutt voru á ráðstefnunni: 

  • Capelin oil for human consumption  
  • Quality seafood 
  • Evaluation of antioxidant activities in by-product hydrolysates, fractionation and concentration of active molecules using seperation technologies (ultra- and nanofiltartion technologies
  • Effect of catch location, season and quality defects on value of Icelandic cod (Gadus morhua) products  

Vísindamenn frá Rf hafa tekið virkan þátt í samstarfi WEFTA-samtakanna nánst frá upphafi. Hægt er að skoða efnisyfirlit bókarinnar á vefsíðu Wageningen Academic Publishers og jafnframt panta bókina fyrir þá sem áhuga hafa á að eignast hana.

Fréttir

Grein frá Rf til birtingar í virtu vísindatímariti

Í gær birtist á vefnum Sciencedirect.com útdráttur greinar frá Rf sem birtast mun bráðlega í hinu virta vísindatímariti Journal of Food Engineering. Greinin nefnist Influencing factors on yield, gaping, bruises and nematodes in cod (Gadus morhua) fillets.  

Greinin er sú fyrsta sem birtist á þessum vettvangi úr doktorsverkefni Sveins Margreirssonar, sem er aðalhöfundur greinarinnar. Doktorsverkefnið tengist stóru verkefni Vinnsluspá, sem hófst á Rf árið 2003 og áætlað er að ljúki á næsta ári.

Markmið verkefnisins er að rannsaka helstu þætti sem hafa áhrif á gæði og vinnslunýtingu þorskafla og eru mælingar gerðar í samvinnu við útgerðarfyrirtæki. Hlutfall þorskafurða sem hafa farið í vinnslu frosinna og ferskra flaka er um 45% af heildarafla í fiskveiðilögsögu Íslands. Aukin þekking og skilningur á eiginleikum hráefnis sem tengja má við verðgildi vörunnar eru því afar mikilvæg.

 Höfundar greinarinnar eru, fyrir utan Sveinn, þeir Guðmundur R. Jónsson, Sigurjón Arason og Guðjón Þorkelsson.  Guðmundur er prófessor við Véla og iðnaðarverkfræðiskor Háskóla Íslands, en hinir eru starfsmenn Rf.  Reyndar eru þeir Sigurjón og Guðjón einnig dósentar við mætvælaskor Raunvísindadeildar H.Í.

Lesa grein

Fréttir

Kafað í hafið í leit að nýjum lyfjum?

Margir Danir fylgjast nú af áhuga með leiðangri danska varðskipsins Vædderen, sem Íslendingar þekkja vel, enda hefur skipið haft reglulega viðkomu á Íslandi á undanförnum árum á leið sinni til og frá Grænlandi. Skipið er nú í átta mánaða vísindaleiðangri, sem nefnist Galatha 3 verkefnið, þar sem siglt er umhverfis jörðina og ýmsar rannsóknir gerðar.

Danska þingið veitti 80 milljónum danskra króna, um 960 milljónir ISK til verkefnisins, einkum til að gera nauðsynlegar endurbætur og breytingar á Vædderen áður en lagt var af stað í leiðangurinn, sem hófst nú um miðjan ágúst og áformað er að ljúki í lok apríl 2007. Að auki hafa einkaaðilar og rannsóknasjóðir lagt fram samtals rúmlega 1 milljarð ISK til hinna ýmsu vísindarannsókna sem áformað er að sinna á meðan á leiðangrinum stendur.

Þótt aðeins sé liðinn um hálfur mánuður síðan leiðangurinn hófst telja vísindamenn um borð sig þegar hafa gert athyglisverðar uppgötvanir. Þannig segist dr. Lone Gram, sem starfar hjá Danmarks Fiskeriundersögelser (DFU), í viðtali við vefsíðu Politiken að leiðangursmenn hafi t.d. fundið athyglisverða örveru á 30 metra dýpi í hafinu við Færeyjar og sem hugsanlega megi nýta, annað hvort í þróun nýrra sýklalyfja eða sem rotvarnarefni. Þess má geta að DFU er e.k. systurstofnun Rf og hafa vísindamenn stofnananna haft töluverða samvinnu á liðnum árum.

Að sögn dr. Gram er þessi örvera “herská” þ.e. hún hamlar vexti eða hreinlega drepur aðrar bakteríur sem hún kemst í tæri við. Dr. Gram segir í viðtali við Politiken.dk ljóst að færeyska bakterían, sem hún kallar S 191 til bráðabirgða, sé því áhugaverð og að hún hlakki til að rækta hana og rannsaka betur gerð hennar þegar hún snúi aftur til Danmerkur.   

Þessi ferð Vædderen er þriðja hnattreisan með þessu sniði sem Danir standa fyrir. Sú fyrsta var farin á skipinu Galatheu I á árunum 1845-1847 en þá fóru flestar rannsóknanna fram á landi. Á árunum 1950 til 1952 var farið í hnattsiglingu á Galatheu II en þá var djúpslóðin könnuð.  Hægt er að fylgjast með leiðangrinum á vefnum, á politiken.dk

Heimildir:

Politiken.dk

skip.is

Fréttir

Starfsfólk Rf í heimsókn í Prokaria

Fyrirtækið Prokaria bauð starfsmönnum Rf að heimsækja fyrirtækið í dag til að kynna fyrir þeim starfsemina sem fram fer að Gylfaflöt í Grafarvogi, en eins og áður hefur komið fram hér á síðunni mun sérstakt fyrirtæki í eigu Rf fljótlega taka yfir erfðagreininga- og ensímsvið Prokaria.

Tilkynning um fyrirhugaða sameiningu birtist á fréttavef Rf fyrr í sumar og þar kom fram að nýja fyrirtækið muni áfram bera nafn Prokaria, enda hefur fyrirtækið byggt upp öflugar rannsóknir og hagnýtingu á erfðaauðlindum náttúrunnar á sviði erfðagreininga og ensímþróunar á undanförnum árum. Fyrirtækið er með þróunarsamninga við alþjóðleg stórfyrirtæki í matvælaiðnaði eins og Nestlé og Roquette.

Í heimsókninni í dag rakti Guðmundur Hreggviðsson Rannsóknastjóri Prokaria sögu fyrirtækisins og greindi frá helstu rannsóknum sem þar fara fram. Einnig fjallaði Sólveig Pétursdóttir, umsjónarmaður örverurannsókna frá helstu rannsóknum sem undir hennar svið heyrir og loks fjallaði Sigríður Hjörleifsdóttir um erfðarannsóknir á vegum Prokaria.

Eftir kynningu skoðaði starfsfólk Rf húsakynni Prokaria og þáði loks léttar veitingar.

Fréttir

Góður gestur kveður Rf

Rf hefur tekið virkan þátt í menntun nemenda á háskólastigi hér á landi um all langt skeið, t.d. fer B.S. nám í matvælafræði við H.Í. að hluta til fram á Rf og fastir kennarar H.Í. í matvælavinnslu og verkfræði eru með aðstöðu á Rf. Mörg verkefni í framhaldsnámi nemenda í matvælafræði, iðnaðarverkfræði og sjávarútvegsfræðum eru einnig unnin á og styrkt af Rf. Þá hafa á undanförnum árum nokkrir ungir, erlendir vísindamenn einnig dvalið tímabundið við starfsþjálfun hér á Rf. Einn slíkur, Judith Reichert frá Þýskalandi, lýkur tæplega hálf árs dvöl sinni á Rf í dag.

Judith kom hingað í mars s.l. á vegum Leonardo Da Vinci starfsmenntaáætlunar Evrópusambandsins og er dvöl hennar á Rf hluti af starfsþjálfun hennar vegna Diplómanáms í efnaverkfræði við Hochschule für Technik und Wirtschaft (University of Applied Science) í Dresden í Þýskalandi. Hún mun nú fara í nokkurra daga frí til heimalandsins áður en hún heldur til Danmerkur þar sem hún mun ljúka námi sínu við DTU – háskólann í Kaupmannahöfn snemma á næsta ári.

Á meðan á dvöl hennar á Rf stóð vann Judith m.a. að rannsóknum í tengslum við Rannís verkefni um Oxun í fiski og örverurannsóknir í tengslum við AVS verkefnið Forvarnir í fiskeldi.  Að sögn Guðrúnar Ólafsdóttur, eins fjögurra leiðbeinenda Judith hér á Rf, er reynsla Rf af þessu alþjóðlega samstarfi afar góð, þeir vísindamenn sem hingað hafa komið hafi yfirleitt reynst mjög áhugasamir og góðir starfskraftar og þar hafi Judith ekki verið nein undantekning.  Þá geti þau tengsl sem myndast með þessum hætti komið sér vel fyrir báða aðila í framtíðinni, enda hefur vísindasamfélagið ekki farið varhluta af þeirri alþjóðavæðingu sem átt hefur sér stað á flestum sviðum á undanförnum árum.

Fréttir

Verkefni á Rf kynnt á Norrænum Næringarráðgjafadögum

Dagana 9. – 12. ágúst var haldin norræn ráðstefna hér á landi á vegum Nordisk Dietistförening, en það eru samtök norrænna næringarfræðinga/ráðgjafa. Á meðal fyrirlesara á ráðstefnunni var Emilía Martinsdóttir, deildarstjóri á Rf.  

Emilía kynnti verkefnið Viðhorf og fiskneysla ungs fólks: Bætt ímynd sjávarafurða, sem hófst árið 2005 og áformað er að ljúki árið 2008. Áður hefur verið sagt frá framgangi verkefnisins hér á síðunni, enda einn megintilgangur verkefnisins fræðsla og kynning í þeim tilgangi að auka fiskneyslu, sérstaklega hjá ungu fólki.

Fyrirlestur Emilíu var fluttur á ensku, eins og aðrir fyrirlestrar á ráðstefnunni, og bar yfirskriftina Improved image of seafood. Consumer’s attitudes and fish consumption. Hægt er að lesa fyrirlestur Emilíu, sem og annað efni frá ráðstefnunni, með því að smella hér.

Fréttir

Ungur vísindamaður frá Rf vakti athygli í Nottingham

Dagana 16.-19. júlí var ráðstefnan The 8th International Conference on The Application of Magnetic Resonance in Food Science haldin í Nottingham í Englandi. Ráðstefna sem þessi er haldin á tveggja ára fresti og á þeim er fjallað um helstu nýjungar í notkun kjarnspunatækni (Nuclear Magnetic Resonance) í matvælarannsóknum hverju sinni. Ungri vísindakonu á Rf, Maríu Guðjónsdóttur, var nokkuð óvænt boðið að halda erindi á ráðstefnunni að þessu sinni.

Upphaflega stóð til að María myndi sækja ráðstefnuna fyrir hönd Rf og kynna þar tvö verkefni á veggspjöldum: “Low field NMR study of the state of water at superchilling and freezing temperatures and the effect of salt on freezing processes of water in cod mince” og “Low field NMR study on seven dry salting methods of cod (Gadus morhua.) Sendi hún afrit af veggspjöldunum til ráðstefnuhaldara í maí, eins og tilskilið var. 

Fyrrnefnda verkefnið vakti hins vegar sérstaka athygli og var valið eitt af fjórum áhugaverðustu veggspjöldum ráðstefnunar og af því tilefni var María beðin um að flytja stuttan fyrirlestur um niðurstöður rannsóknarinnar fyrir ráðstefnugesti.  Að sögn Maríu kom þetta skemmtilega á óvart og tókst fyrirlesturinn vonum framar.

María er efna- og eðlisverkfræðingur (Civ. ing. Kemiteknik med fysik) að mennt og lærði m.a. við Chalmers- tækiháskólann í Svíþjóð.  Rannsóknir hennar á Rf beinast m.a. að söltun, vöruþróun, vinnslueiginleikum, vatnsheldni, próteinum, léttsöltun.

Sjá má frekari lýsingu á ráðstefnunni á slóðinni http://www.biopolymersolutions.co.uk/nmr/ .

Fréttir

Tilkynning um sumarlokun á Rf / IFL closed July 17 – Aug 8.

Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Rf í Reykjavík lokuð frá 17. júlí til 8. ágúst. Sjá nánari upplýsingar um bein símanúmer. – Our office in Reykjavik will be closed from July 17. until August 8. This includes our telephone desk. See information below about direct phone numbers.

Þorri starfsfólks Rf verður í sumarfríi síðustu tvær vikurnar í júlí og fyrstu vikuna í ágúst, þar á meðal starfsfólk skrifstofu, sem m.a. sér um að manna skiptiborð og svara fyrirspurnum. Ekki eru þó allir starfsmenn Rf í fríi á umræddu tímabili og er hægt að ná í þá starfsmenn með því að hringja í bein símanúmer viðkomandi.

Efnastofa: 530 8623 eða 530 8624

Örverustofa: 530 8602 eða 530 8607

Snefilefnastofa: 530 8654 eða 530 8659


ENGLISH:
Due to summer vacations our offices in Reykjavik, including our telephone desk, will be closed from July 17. until Aug. 8. It is possible, however, to contact the IFL employees who will not be vacationing during this period directly. Here is our phone directory

Fréttir

Ársskýrsla Rf fyrir árið 2005 komin út

Ársskýrsla Rf 2005, þar sem það helsta úr starfsemi Rf á árinu 2005 er tíundað, er nú komin út og er aðgengileg hér á vefnum sem pdf-skjal. Skjalið er tæplega 6MB að stærð, enda er skýrslan all mikil að vöxtum, tæplega 50 bls.

Eins og margir vita samþykkti Alþingi nú í vor lög sem heimila ríkisstjórninni að stofna hlutafélag, sem nefnist Matvælarannsóknir hf., um rekstur Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Matvælarannsókna Keldnaholti, sbr. samstarfssamning milli Iðntæknistofnunar og Landbúnaðarháskólans, og rannsóknastofu Umhverfisstofnunar. Reiknað er með að Matvælarannsóknir hf hefji starfsemi þ. 1. janúar 2007. Ársskýrsla Rf 2005 er því síðasta eiginlega ársskýrslan sem Rf gefur út undir því nafni.

Á meðal þess sem fram kemur í Ársskýrslunni 2005 er að velta Rf minnkaði ekki á milli áranna 2004-5, þrátt fyrir mun minni sértekjur af þjónustumælingum, en eins og kunnugt er var tekin sú ákvörðun fyrir nokkrum árum að Rf myndi draga sig að mestu leyti út úr samkeppnisrekstri, einkum á sviði þjónustumælinga.  Þetta fól m.a. í sér að þremur þjónustuútibúum Rf var lokað, á Ísafirði, Akureyri og í Vestmannaeyjum.  Starfsemi Rf á þessum stöðum heldur þó áfram með breyttum áherslum, þar sem lögð er áhersla á rannsóknir og nýsköpun.

Ein aðalástæðan fyrir því að Rf hefur haldið sjó, þrátt fyrir þennan samdrátt þjónustumælinga, er að rannsóknatekjur Rf hafa hækkað verulega, bæði innanlendar og erlendar.  Það hefur gerst þrátt fyrir að Rannsóknasjóður, sem áður hét Tæknisjóður, er ekki jafn fús til að styrkja hagnýt rannsóknarverkefni eins og forveri hans gerði áður.   Þá hefur AVS-rannsóknasjóðurinn og Tækniþróunarsjóður haft almennt jákvæð áhrif fyrir rannsóknarstarfsemi og nýsköpun í sjávarútvegi. 

Lesa skýrslu(pdf-skjal 6MB)

IS