Þann 6. júní næstkomandi stendur Matís fyrir sérstöku málþingi um framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi og hlutverk matvælarannsókna til að stuðla að sjálfbærri framleiðslu, nýsköpun og aukinni verðmætasköpun.
Dagskrá:
Ávarp
- Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, opnar fundinn
Erindi
- Rannsóknir á uppsjávarfiski
- Rannsóknir á fiskeldi
- Matvælaöryggi á Íslandi | nýjar áskoranir
- Matvælaframleiðsla og loftlagsmál
- Sjálfbær áburðarframleiðsla á Íslandi
- Kátur er kjötfullur krummi
- Íslenskt korn og fæðuöryggi
- Eru þörungar matur framtíðarinnar?
- Ný tækifæri í þörungarækt. Prof. Alejandro H. Buschmann
- Umræður
Fundarstjórn:
Bergur Ebbi Benediktsson
Hvenær
6. júní, 2023 – frá 9:00 – 12:30
Hvar
Norðurljósasalur Hörpu