Matís tók þátt í Blue Open House á Nýsköpunarviku

Matís tók þátt í viðburðinum Blue Open House, sem haldinn var þann 30. apríl síðastliðinn í tengslum við Nýsköpunarviku. Viðburðurinn var skipulagður af Sjávarklasanum og er liður í að efla sýnileika, tengslamyndun og samstarf innan nýsköpunarumhverfisins.

Matís var með kynningarbás á staðnum þar sem gestum gafst kostur á að kynna sér fjölbreytta starfsemi fyrirtækisins. Þar var meðal annars kynnt greining á reglugerðarumhverfi og kröfum Evrópusambandsins um nýfæði, sem unnin var innan verkefnisins SEAFOODTURE. Einnig var starfsemi Matarsmiðju og tilraunaeldhúss Matís kynnt, en sú aðstaða uppfyllir kröfur um matvælaframleiðslu og er ætluð frumkvöðlum og smáframleiðendum sem eru að stíga sín fyrstu skref í framleiðslu.

Viðburðurinn var vel sóttur og skapaði góð tækifæri til samtals við áhugasama gesti, miðlunar þekkingar og tengslamyndunar í jákvæðu og skapandi andrúmslofti.

Skrunaðu efst