Rf auglýsir eftir tveimur verkefnastjórum til starfa á fiskeldisdeild Rf. Annað starfið er á Akureyri en hitt á Ísafirði. Ekki er um sams konar starf að ræða, enda mismunandi áherslur í starfsemi fiskeldisdeildar Rf á áðurnefndum stöðum.
Hjá Rf á Akureyri er unnið að verkefnum tengdum fóðri og næringarfræði fiska og mun auglýst starf verkefnastjóra þar mun einkum felast í umsjón með rekstri verkefna, samstarfi við fyrirtæki, stofnanir, háskóla og einstaklinga um verkefni.
Nánari lýsing á starfi á Akureyri
Á Ísafirði er Rf að byggja upp öfluga starfsemi á sviði fiskeldis, sértaklega þorskeldis, og þar er m.a. unnið að verkefnum er lúta að ljósastýringu, lífeðlisfræði og atferli þorsks í eldi.
Nánari lýsing á starfi á Ísafirði
Umsóknarfrestur um bæði störfin er til 20. maí 2006.
Rannveig Björnsdóttir, deildarstjóri Fiskeldisdeildar Rannsóknarsviðs Rf veitir nánari upplýsingar um störfin: rannveig@rf.is 895 2176