Skítur skeður – Málstofa um fiskeldismykju og skyldar áskoranir

Valur Norðri Gunnlaugsson

Fagstjóri

valur@matis.is

Með stórauknu landeldi mun safnast upp laxamykja, þ.e. laxaskítur og óétið fóður, sem þarf að finna farveg fyrir. Ef áætlanir landeldisfyrirtækjanna ganga eftir má búast við rúmlega 100,000 tonnum af afvatnaðri mykju, með ca. 25% þurrefnisinnihaldi, falli til á ári hverju. Í OCCAM verkefninu er Matís í samstarfi við Samherja fiskeldi að skoða gerð lífkola með pýrulýsu aðferð. Þar er afvötnuð mykja bökuð við háan hita (500-700°C) við súrefnissnauðar aðstæður og myndast við það lífkol, olía og gas. Þessi lífkol hafa ákveðna eiginleika og geta nýst sem áburður eða við að rækta upp örfoka land. Það er mikilvægt fyrir landeldisfyrirtækin að finna viðunandi lausn á þessum málum samhliða þeirri hröðu uppbyggingu sem á sér núna stað.

Það er afar mikilvægt að upplýsingar varðandi möguleika með nýtingu mykjunar séu sýnilegar og aðilar í iðnaðinum séu upplýstir um nýjustu niðurstöður rannsókna og prófanna. Málstofan „Skítur skeður“ þar sem áskoranir varðandi fiskeldismykjuna ásamt skyldum áskorunum er því kærkomin til að leiða saman hagaðila sem eru að skoða þessi mál frá mismunandi sjónarhornum. Málstofan fer fram á Matís, Vínlandsleið 12, mánudaginn 8. júní, kl. 13:30-15:45. 

Markmið OCCAM Horizon verkefnisins er að þróa, prófa, sýna fram á virkni, meta og loks innleiða lausnir á sviði mótvægis- og aðlögunaraðgerða gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga fyrir fiskeldisiðnaðinn í Evrópu. Hópur þátttakenda samanstendur af 22 fyrirtækjum, fulltrúum yfirvalda, háskólum og öðrum rannsóknarstofnunum. Lausnirnar verða þróaðar og innleiddar á 9 svæðum víðsvegar um Evrópu.

Mynd: Laxey

Skrunaðu efst