ÍSGEM íslenski gagnagrunnurinn um efnainnihald matvæla – Skýringar fyrir notendur

Íslenski gagnagrunnurinn um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) geymir upplýsingar um efnainnihald matvæla sem eru á íslenskum markaði, svo sem fitu, kolvetni, prótein, trefjar, vítamín og steinefni.

Gagnagrunnurinn er í eigu og umsjón Matís ohf. Gögn úr ÍSGEM eru aðgengileg í opnum aðgangi á vefsíðu Matís.

Hægt er að leita að gögnum eftir heitum fæðutegunda á íslensku eða ensku og er nóg að slá inn hluta úr heitum fæðutegunda, leit í ÍSGEM. Einnig er hægt að nálgast töflur á pdf formi þar sem er að finna algengar fæðutegundir og nokkur valin efni. Hver fæðutegund fær eina línu á tveimur blaðsíðum Næringartöflur – Matís.

Scroll to Top