Ensím fyrir sjávarlíftækni

Markmið verkefnisins Marikat er að þróa ensím fyrir vinnslu lífefna úr sjávarfangi. 

Þang og þari innihalda mikið af sykruefnum með margvíslega lífvirkni.

Sykrurnar eru frábrugðnar sykrum sem finnast í landplöntum og ennþá vantar ensím tól til að auðvelda vinnslu þeirra úr þangi og umbreytingu í verðmæt efni.

Í verkefninu verða þróuð ýmis konar ensím til þess að vinna lífvirkar smásykrur, sjaldgæfar sykrur, fjölfenól og yfirborðsvirk efni úr þangi. Markað fyrir slík efni má finna hjá matvæla- lyfja- og snyrtivöruiðnaði.

Scroll to Top