Ensím fyrir sjávarlíftækni

Heiti verkefnis: Marikat

Samstarfsaðilar: Háskólinn í Lundi, Svíþjóð; DTU Tækniháskóli Danmerkur; Hellenic Centre for Marine Research; Háskólin Krít; Grikklandi, LLa – Bioeconomy Danmörk; Enza Biotech AB -Svíþjóð; ORF Færeyjum; Háskólinn í Utrecht Hollandi; Aventure, Svíþjóð

Rannsóknasjóður: Tækniþróunarsjóður

Upphafsár: 2020

Þjónustuflokkur:

liftaekni

Tengiliður

Björn Þór Aðalsteinsson

Verkefnastjóri

bjornth@matis.is

Markmið verkefnisins Marikat er að þróa ensím fyrir vinnslu lífefna úr sjávarfangi. 

Þang og þari innihalda mikið af sykruefnum með margvíslega lífvirkni.

Sykrurnar eru frábrugðnar sykrum sem finnast í landplöntum og ennþá vantar ensím tól til að auðvelda vinnslu þeirra úr þangi og umbreytingu í verðmæt efni.

Í verkefninu verða þróuð ýmis konar ensím til þess að vinna lífvirkar smásykrur, sjaldgæfar sykrur, fjölfenól og yfirborðsvirk efni úr þangi. Markað fyrir slík efni má finna hjá matvæla- lyfja- og snyrtivöruiðnaði.