EuFish_SustainableGrowth miðar að því að bæta nýtingu á vannýttum fisktegundum og hliðarstraumum fiskvinnslu, meðal annars með aukinni greiningu á hráefninu með „omic“ aðferðum.
Markmiðum verkefnisins má skipta upp í eftirfarandi þætti:
- Fjölgreinarannsóknir á vannýttum fisktegundum með tilliti til vistfræði, útbreiðslu, sameindaauðkenningu tegunda, samsetningu örveruflóru, efnamengun, næringarfræðilegum- og skynrænum eiginleikum og efnamengun.
- Þróun á nýjum matvælum, fóðri og öðrum verðmætaskapandi afurðum úr vannýttu hráefni.
- Þróun vefgáttar til að deila með hagsmunaaðilum upplýsingum um vannýtt hráefni og þeim áskorunum og tækifærum sem fylgja nýtingu þeirra.
Verkefninu er stýrt af Háskólanum í Napólí, en hér á Íslandi eru það Matís, Brim og Grímur Kokkur sem standa að verkefninu. Mun áhersla hér á landi snúa að bættri nýtingu og verðmætasköpun úr tegundum á borð við gulllax og kolmunna. Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu þess hér.