Verkefni um kornrækt á norðlægum slóðum var unnið á tímabilinu 2013 til 2015. Verkefnið var styrkt af Norræna Atlantssamstarfinu (NORA). Þátttakendur komu frá Íslandi, N-Noregi, Færeyjum, Grænlandi, Orkneyjum og Nýfundnalandi.
Tilgangurinn með verkefninu var að styðja við kornrækt á strjálbýlum norrænum svæðum með því að prófa mismunandi byggyrki og koma með leiðbeiningar fyrir bændur og matvælafyrirtæki. Efnilegustu byggyrkin (Kría, Tiril, Saana, Bere, NL) voru prófuð hjá öllum þátttakendum og mælingar gerðar á uppskeru og gæðum.
Magn bygguppskeru var breytilegt milli svæða og ára. Meðal sterkjuinnihald þurrkaðs korns var 58% en það var nægjanlegt fyrir bökunariðnað. Sveppaeiturefni (e. mycotoxin) greindust ekki í þeim sýnum sem send voru til greiningar. Ályktað var að kornsáninng snemma væri mikilvægasti þátturinn til að stuðla að góðri kornuppskeru á NORA svæðinu. Einnig var álitið mikilvægt að skera kornið snemma til að koma í veg fyrir afföll vegna storma og fugla.
