Lífvirkar smásykrur úr íslensku þangi

Heiti verkefnis: Lífvirkar smásykrur úr íslensku þangi

Samstarfsaðilar: IceProtein; Prokazyme

Rannsóknasjóður: AVS

Upphafsár: 2015

Tengiliður

Ólafur H. Friðjónsson

Fagstjóri

olafur@matis.is

Framleiðsla á lífvirkum beta-glúkan smásykrum með hjálp ensíma.

Markmið verkefnisins var að þróa framleiðslu á lífvirkum beta-glúkan smásykrum úr brúnþörungum af ættkvíslinni Laminaria sem vaxa í miklu magni við strendur Íslands.

Eftir vinnslu og hreinsun á laminarin fjölsykrum voru ensím notuð til þess að útbúa greinóttar smásykrur með margvíslega lífvirkni og bætibakteríuörvandi (prebiotic) eiginleika.