Ný ensím til þess að breyta beta-glúkan sykrum í ný afbrigði með nýja lífvirkni

Heiti verkefnis: Novel transglucosidasar

Samstarfsaðilar: Háskólinn í Grönigen Hollandi; Prokazyme

Rannsóknasjóður: Rannsóknarsjóður

Upphafsár: 2014

Tengiliður

Guðmundur Óli Hreggviðsson

Stefnumótandi sérfræðingur

gudmundo@matis.is

Vísindamenn hjá Matís og Háskólanum í Gröningen Hollandi hafa um árabil rannsakað ensím sem umbreyta beta-glúkan fjöl- og fásykrum og voru þeir fyrstir til að lýsa virkni slíkra ensíma.

Markmið verkefnisins var að auka við þekkingu á eiginleikum þessara ensíma og kanna samband byggingar og virkni. Myndbygging ensímanna var rannsökuð  og ítarleg greining var gerð á virkni ensímanna og gerð myndefna. Einnig var lykilamínósýrum í hvötunarhvörfum breytt til þess að skilgreina hvarfgang.

Lokamarkmið var að þróa ensímverkfærakistu til umbreytinga og framleiðslu á flóknum beta-glukan fjölsykrum og fásykrum. Slíkar sykrur hafa mikla hagnýtingarmöguleika á ýmsum sviðum.

https://innri.matis.is/malaskra/cmCaseDocumentSet/Novel%20beta-transglucosidases/Novel_Transglucosidsases_IRF_Final_Reprot_2017.pdf

Almennt heiti verkefnis: Novel transglucosidasar