Nýting léttbyggs

Almennt gengur kornrækt vel á Íslandi, sérstaklega á Suðurlandi. Veðurfar er breytilegt milli ára og sum héruð geta lent í því að korn nái ekki að þroskast eins vel og ætlast er til. Í verkefninu var ætlunin að svara því hvort hægt sé að gera verðmæti úr korni sem hefur ekki náð fullum þroska. Það þarf nýsköpun til að nýta þetta óþroskaða korn og koma í veg fyrir sóun þannig að bændur fái einhverjar tekjur.

Léttbygg er nýyrði sem verður notað fyrir bygg sem hefur ekki náð fullum þroska og hefur því lágt hlutfall sterkju en er aftur á móti trefjaríkt. Léttbygg inniheldur fleiri næringarefni eins og prótein og sykurtegundir. Fínmalað léttbygg getur nýst í matvæli eins og brauð og það getur opnað möguleika á merkingunni „trefjaríkur“ á umbúðum matvæla.

Sýnt var fram á að hægt er að nota léttbygg með öðru korni í fóður mjólkurkúa en finna þarf hámark fyrir léttbyggið til þess að halda uppi ásættanlegu magni afurða. Mögulegt er að léttbygg geti skipt máli fyrir fæðuöryggi Íslands.

Skrunaðu efst