Súrþang

Heiti verkefnis: SeaFeed

Samstarfsaðilar: University of Helsinki, Quadram Institute

Rannsóknasjóður: EIT, Tækniþróunarsjóður

Upphafsár: 2020

Þjónustuflokkur:

Fiskeldi

Tengiliður

Ólafur H. Friðjónsson

Fagstjóri

olafur@matis.is

Markmið verkefnisins SeaFeed var að þróa og staðla verkunaraðferð þangs sem byggir á meðhöndlun mjólkursýrubaktería og annarra gerjunarörvera.

Mjólkursýrubakteríurnar brjóta niður fjölsykrur í þanginu, gera það meltanlegra og nothæft sem fóðurbæti sem ríkur er af fásykrum og fjölfenólum með margvíslega lífvirkni og bætibakteríuörvandi (prebiotic) eiginleika.