Þróun líftæknilegra aðferða við framleiðslu á heilsusamlegum bragðefnum

Heiti verkefnis: TASTE

Samstarfsaðilar: Prokazyme Íslandi, CyberColloids Írlandi, Scheid Þýskalandi, Aleor Frakklandi, Frutarom-Etol Slóveníu, Calaf Nuances Spáni, Fraunhofer IVV Þýskalandi

Rannsóknasjóður: EU FP7 SME-2012 (315170)

Upphafsár: 2012

Þjónustuflokkur:

thorungar

Tengiliður

Rósa Jónsdóttir

Fagstjóri

rosa.jonsdottir@matis.is

Markmið verkefnisins TASTE er að þróa líftæknilegar aðferðir við framleiðslu á heilsusamlegum bragðefnum og þróa saltminni matvörur með bragðefnum úr þangi.

Markmið verkefnisins er að þróa bragðefni úr klóþangi (Ascophyllum nodosum), beltisþara (Laminaria saccharina) og bóluþangi (Fucus vesiculosus ) með bragðaukandi áhrif, m.a. til að draga úr saltnotkun í matvælavinnslu. Markmiðið er að þróa líftæknilegar aðferðir við framleiðslu á heilsusamlegum bragðefnum og þróa saltminni matvörur með bragðefnum úr þangi.