Markmið verkefnisins er að prófa hvort Omega-3 ríkir örþörungar, sem eru framleiddir hjá VAXA á Hellisheiði, henti vel sem fóður fyrir laxa, rækju og skelfisk. Örþörungar eru grunnurinn í fæðukeðjunni og uppspretta margra næringarefna, svo sem Omega-3, sem er mikilvæg fyrir heilbrigðan vöxt og lifun á frumvaxtarstigi margra fiska, krabbadýra og lindýra.
Þróun smáþörungafóðurs fyrir Fiskeldi
- Dagsetning færslu 10/02/2021
Heiti verkefnis: Þróun smáþörungafóðurs fyrir Fiskeldi
Samstarfsaðilar: VAXA
Rannsóknasjóður: Tækniþróunarsjóður
Upphafsár: 2019
Þjónustuflokkur:
Fiskeldi