Útbreiðsla sjávarspendýra í Norður-Atlantshafi og áhrif þeirra á fiskveiðar

Undanfarna fimm áratugi hafa verið innleiddar umfangsmiklar verndaraðgerðir til verndar sjávarspendýra í heimshöfnum. Árið 1972 samþykktu Bandaríkin löggjöf sem takmarkaði innflutning á afurðum sjávarspendýra og á níunda áratugnum innleiddi Evrópusambandið takmarkanir á innflutningi tiltekinna selaafurða. Árið 1986 tók gildi bann Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) við hvalveiðum í atvinnuskyni. Þessar aðgerðir voru fyrst og fremst viðbrögð við langvarandi ofnýtingu sjávarspendýrastofna og vaxandi áhyggjum af dýravelferð.

Síðan þá hefur dregið úr veiðiálagi sem hefur gert sumum tegundum og stofnum kleift að ná sér á strik og auka útbreiðslu sína. Endurheimt stofna hefur þó verið mjög mismunandi eftir tegundum og landsvæðum.

Samkvæmt bráðabirgðamati eru um 14,5 milljónir sela og 7,7 milljónir hvala í Norður-Atlantshafi og Norður-Íshafi. Áætlað er að þessi dýr éti samtals nærri 200 milljónir tonna af lífmassa á ári, samanborið við um 10 milljón tonna árlegan fiskveiðiafla  í norðvestan- og norðaustanverðu Atlantshafi (FAO-veiðisvæði 21 og 27). Þessar tölur undirstrika mikilvægi sjávarspendýra í vistkerfum Norður-Atlantshafs og vekja jafnframt spurningar um samspil þeirra við nytjafiskstofna og fiskveiðar.

Sjávarspendýr, fiskveiðar og samspil innan vistkerfa hafsins

Þar sem flestir stofnar sjávarspendýra njóta verndar hefur athygli í auknum mæli beinst að samspili þeirra við fiskveiðar í atvinnuskyni. Á sumum svæðum keppa sjávarspendýr við fiskveiðar um tilteknar fæðutegundir, valda skemmdum á veiðarfærum, éta fisk úr veiðarfærum og skapa ýmiss konar áskoranir við fiskveiðar. Slík samskipti geta haft efnahagsleg áhrif á sjávarútveg og samfélög sem byggja afkomu sína á fiskveiðum. Samband sjávarspendýra, nytjafiskstofna og vistkerfa hafsins er hins vegar flókið og enn að verulegu leyti óþekkt. Sjávarspendýr eru órjúfanlegur hluti fæðuvefja hafsins og vistfræðilegt hlutverk þeirra nær langt út fyrir bein tengsl rándýra og bráðar. Sem dæmi má nefna að hvalir stuðla að hringrás næringarefna með svokallaðri hvaladælu (e. whale pump), sem getur aukið aðgengi að næringarefnum og örvað frumframleiðni í hafinu. Stórhveli geta einnig stuðlað að bindingu og flutningi kolefnis. Sjávarspendýr hafa auk þess víðtæk áhrif á samspil tegunda í fæðuvefjum, uppbyggingu vistkerfa og líffræðilega fjölbreytni. Aukinn skilningur á þessum tengslum er nauðsynlegur til að þróa vísindalega grundvallaðar aðferðir við fiskveiðistjórnun, verndun sjávarspendýra og sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins.

Markmið og framkvæmd verkefnisins

Til að stuðla að bættri miðlun þekkingar og upplýstri umræðu um þessi málefni hóf vinnuhópur Norrænu ráðherranefndarinnar um fiskveiðar og fiskeldi (AG fisk) tveggja ára samstarfs- og tengslanetverkefni árið 2026. Markmið verkefnisins er að byggja upp samstarfsnet vísindamanna, sérfræðinga í sjávarútvegi og annarra hagaðila á Norður-Atlantshafssvæðinu. Innan þess verður lögð áhersla á að miðla þekkingu og gögnum, greina þekkingareyður, leggja mat á fyrirliggjandi vísindalegar rannsóknir og koma niðurstöðum á framfæri við stjórnvöld, fulltrúa atvinnulífsins og almenning. Verkefnið mun stuðla að samstarfi og þekkingarmiðlun með vinnustofum, ráðstefnum og fundum með hagaðilum. Þessi vefsíða verður vettvangur fyrir miðlun frétta af verkefninu, vísindalegra niðurstaðna, viðeigandi útgáfuefnis og upplýsinga um fyrirhugaða viðburði.

Sérstök áhersla verður lögð á þátttöku sjávarbyggða og hagaðila innan sjávarútvegsins. Skipulagðir verða fundir í völdum sjávarbyggðum þar sem samstarfsaðilar verkefnisins munu kynna fyrirliggjandi vísindalega þekkingu, ræða reynslu af samskiptum sjávarspendýra og fiskveiða og eiga samtal við sjómenn og aðra staðbundna hagaðila. Með því að leiða saman vísindalega sérþekkingu og reynslu þeirra sem starfa við sjávarútveg er markmiðið að auka skilning á vistfræðilegum, efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum samspils sjávarspendýra og fiskveiða.

Sú þekking sem verður til í verkefninu mun nýtast til að styðja við upplýsta umræðu og gagnreynda ákvarðanatöku um fiskveiðistjórnun, verndun sjávarspendýra og framtíð sjávarbyggða við Norður-Atlantshaf.

Í lok verkefnisins verður gefin út lokaskýrsla í ritröð Norrænu ráðherranefndarinnar, TemaNord.

Væntanlegir viðburðir – Reykjavík, 4.–5. nóvember 2026

Í tengslum við verkefnið verða haldnir tveir viðburðir í Reykjavík í nóvember 2026.

4. nóvember 2026 – Vinnustofa

Vinnustofa verður haldin hjá Matís í Reykjavík þar sem vísindamenn, sérfræðingar í sjávarútvegi og aðrir hagaðilar koma saman til að miðla þekkingu og ræða samspil sjávarspendýra, nytjafiskstofna og fiskveiða.

5. nóvember 2026 – Málstofa á Sjávarútvegsráðstefnunni

Sérstök málstofa verður haldin í tengslum við Sjávarútvegsráðstefnuna. Þar gefst tækifæri til að kynna vísindalegar niðurstöður, ræða áskoranir við stjórnun og nýtingu auðlinda hafsins og eiga samtal við fjölbreyttan hóp þátttakenda úr sjávarútvegi.

Drög að dagskrá beggja viðburða má nálgast, hér.

Skráning

Málstofa 5. nóvember: Skráning fer fram á vefsíðu Sjávarútvegsráðstefnunnar.

Vinnustofa 4. nóvember: Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á jonas@matis.is.

Skrunaðu efst