Fyrirtækið Frostþurrkun ehf hóf nýlega starfsemi í Þorlákshöfn og er þar um að ræða fyrstu iðnaðarfrostþurrkunina á Íslandi.
Í Þorlákshöfn er auk þess þegar hafin stórfelld uppbygging landeldis þar sem nokkur fjöldi fyrirtækja hafa áform um að framleiða vel á annað hundruð þúsund tonn af landeldislaxi á ári. Markmið þessa verkefnis eru að Þróa nýja framleiðsluferla sem byggja á frostþurrkun fyrir mismunandi hráefni í slógi frá fiskvinnslu landeldislaxa s.s. lifur, milta, hjarta og hrognum. Einnig verða Þróaðar nýjar og verðmætar vörur úr vannýttum hliðarhráefnum úr framleiðslu landeldislaxa, en áhersla verður lögð á að þróa verðmæt fæðubótarefni úr laxalifur, milta, hrognum og hjörtum. Innan verkefnisins verða framkvæmdar efnagreiningar og geymsluþolstilraunir á frumgerðum af afurðunum.