Námskeið Matís
Matís er stærsta rannsóknafyrirtæki landsins á sviði matvælarannsókna og býður upp á vönduð og hagnýt námskeið fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Starfsfólk Matís hefur áralanga reynslu af rannsóknum á matvælum, því er þekking og reynsla á þessu sviði meginstyrkur fyrirtækisins. Matís leggur ríka áherslu á að miðla þessari þekkingu til matvælaiðnaðar á Íslandi.
Boðið er upp á vönduð og hagnýt námskeið fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Vinsamlegsta hafið samband og leitið tilboða í námskeið hjá Matís.
Hér fyrir neðan finnur þú hluta af þeim námskeiðum sem Matís býður upp á. Matís tekur ávallt mið af aðstæðum viðkomandi fyrirtækis, s.s. tegund vinnslu, fjölda starfsfólks o.s.frv.
Matís býður upp á námskeið, varðandi meðhöndlun á matvælum, hreinlæti, helstu áhættur og matvælaöryggi, sem er sérstaklega miðað að starfsfólki
Innra eftirlit, GÁMES (HACCP), fyrir ferskan fisk Ætlað stjórnendum fyrirtækja sem vinna með ferskan fisk. Nánari upplýsingar má fá með því að
Farið verður yfir öll meginatriði varðandi vinnslu og meðhöndlun vörunnar, allt þar til hún er komin á borð neytenda.
Farið verður yfir öll meginatriði varðandi vinnslu og meðhöndlun vörunnar, allt þar til hún er komin á borð neytenda.
Umsjón með námskeiðum hafa Margeir Gissurarson og Óli Þór Hilmarsson.
Ertu með hugmynd að námskeiði?
Ef þú ert með hugmynd að námskeiði, hvort sem það er fyrir smærri eða stærri hópa, þá hvetjum við þig til að senda okkur tölvupóst. Netfangið er namskeid@matis.is.






