Matís býður til morgunfundar um stöðu og framtíðarhorfur líftækni á Íslandi og hvernig Matís getur hjálpað fyrirtækjum á sviði líftækni og lífefna að hasla sér völl í íslensku atvinnulífi.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir.
- Matís Líftækni – Starfsemi, innviðir & hagnýtar líftækni rannsóknir – Elísabet Guðmundsdóttir & Björn Þór Aðalsteinsson
- Matís Lífefni – Einangrun og nýting lífvirkra efna úr íslenskri náttúru – Sophie Jensen & Margrét Geirsdóttir
- Hvernig hefur Matís stutt við VAXA – Kristinn Hafliðason – myndband:
- Umræður
- Opnað með kynningum frá Jóni Má Björnssyni, ORF genetics, Steini Guðmundssyni, Háskóla Íslands og Hildi Magnúsdóttur, Pure Natura.
- Staða líftækni og framtíðarhorfur
- Samstarfsmöguleikar, rannsóknarverkefni, bein þjónusta og ráðgjöf
Fundurinn var haldinn þann 27. maí. Hér að neðan má sjá upptöku af fundinum.
Hér er hlekkur á viðburðarsíðu fundarins á facebook.
Þessi viðburður er hluti af áherslufundaröð sem haldin er í kjölfar ársfundar til þess að gefa frekari innsýn í starfsemi Matís sem veitir mismunandi geirum og greinum atvinnulífsins stuðning.
Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur á matis.is.