ALGAMAT er evrópskt rannsóknarverkefni sem Nord University í Noregi stýrir. Verkefnið er styrkt í gegnum FutureFoodS – The European Partnership for a Sustainable Future of Food Systems, sem er fjármagnað að hluta af Horizon Europe-áætlun Evrópusambandsins. Íslensk þátttaka er fjármögnuð af RANNÍS.
Meginmarkmið verkefnisins er að þróa sjálfbærar virðiskeðjur fyrir lífmassa úr hafinu, og umbreyta þara og hliðarstraumum í nýstárlegar, næringarríkar og umhverfisvænar matvörur. Megináherslan er á hamborgara úr þara sem sjálfbæran og heilsusamlegan valkost við hefðbundið kjöt.
Verkefnið byggir á þverfaglegri nálgun sem sameinar sérfræðiþekkingu á sviði matvælaefnafræði, líftækni, umhverfisfræði og félagsvísinda.
Samhliða vöruþróun verður unnið að því að endurnýta hliðarstrauma í áburð og vaxtarörva með skýrum umhverfis-, félags- og efnahagslegum ávinningi. Verkefnið felur einnig í sér ítarlegar lífsferilsgreiningar, kostnaðarmat, greiningu á regluverki og þróun viðskiptamódela og markaðsáætlana með hliðsjón af evrópskum markaði fyrir jurtapróteinvörur.
Viðbrögð og viðhorf neytenda eru þungamiðja verkefnisins. Með samsköpun, skynmatsrannsóknum og þátttöku hagaðila innan virðiskeðjunnar frá þararækt og matvælavinnslu til stefnumótunar og neytenda er tryggt að niðurstöður verkefnisins verði tæknilega traustar en einnig viðskiptalega hagkvmar og samfélagslega viðurkenndar.
Matís ohf tekur þátt í ALGAMAT og leggur til sérfræðiþekkingu í vöruþróun, skynmati, matvælatækni og neytendarannsóknum. Verkefnið endurspeglar áherslu Matís á sjálfbæra nýtingu auðlinda og þróun nýrra matvæla úr vannýttum hráefnum og hliðarstraumum.



