Það er ánægjulegt að sjá hvernig Kaia Fisheries í Alaska vinnur að því að auka bæði gæði og verðmæti Kyrrahafsþorsks með markvissari meðhöndlun og kælingu um borð í fiskiskipum.
Matís fékk tækifæri til að styðja við þessa þróun með rannsóknum þar sem hefðbundin kæling í kældum sjó (RSW) var borin saman við nýja aðferð sem sameinar kælingu með vökvaís (slurry ice) og notkun einangraðra fiskikerja.
📊 Niðurstöðurnar sýndu að með nýju aðferðinni mátti lengja geymsluþol fisksins um 5–6 daga. Jafnframt héldust gæði fisksins betri allan geymslutímann, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Þetta er frábært dæmi um hvernig hagnýtar rannsóknir og nýsköpun í atvinnulífinu geta unnið saman að því að bæta gæði sjávarafurða, draga úr mögulegri sóun og skapa meiri verðmæti úr aflanum.
🎥 Sjáðu sögu Kaia Fisheries:
📄 Lestu rannsóknarskýrslu Matís: https://doi.org/10.5281/zenodo.15017638

