Matís vinnur nú að fjölda rannsókna- og nýsköpunarverkefna sem snúa að því að lágmarka umhverfisáhrif fiskveiða og stuðla að árangursríkri aðlögun sjávarútvegs að áhrifum loftslagsbreytinga. Verkefnin hafa það öll sameiginlegt að vinna að sjálfbærni með því að nýta gögn, nýsköpun og lausnir sem draga úr umhverfisáhrifum og bæta ákvarðanatöku.
Aukin þekking styður við vernd og sjálfbæra nýtingu hafsins
Aukin þekking er lykillinn að verndun sjávarvistkerfa og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Með markvissri gagnaöflun og þróun lausna sem styðja við upplýsta ákvarðanatöku er hægt að draga úr áhrifum mannlegra athafna á hafið.
Verkefnið MarineGuardian hefur það að markmiði að efla sjálfbærar fiskveiðar og stuðla að verndun sjávarvistkerfa í Atlantshafi og Norðuríshafi. Með þróun lausna og aukinni þekkingu er unnið að því að draga úr meðafla, brottkasti og olíunotkun, auk þess að minnka áhrif á botnvistkerfi og bæta nýtingu afla.
Stafrænar lausnir gegna mikilvægu hlutverki í verkefnum Matís, til að mynda við að bæta skilning á vistkerfum og nytjastofnum hafsins. Verkefnið ARCHFISH notast við stafrænan tvífara (Digital Twin) sem nýtir haffræð-, veðurfræði-, líffræði- og fiskveiðigögn til að veita betri upplýsingar um hafsvæðin. Verkefnið BioProtect þróar einnig tæknilegar lausnir til að bregðast við lofslagsbreytingum. Verkefnið felur í sér vöktun á líffræðilegum fjölbreytileika og kortlagningu á áhrifum manna á hafið, með það að markmiði að styðja við ákvarðanir um nýtingu og verndun hafsvæða.

Tekist á við loftslagsbreytingar með öflugum mótvægisaðgerðum
Hjá Matís eru í gangi nokkur metnaðarfull verkefni sem leggja áherslu á að efla viðbrögð sjávarútvegs og fiskeldis við áskorunum af völdum loftslagsbreytinga. Verkefnin eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á þróun og innleiðingu raunhæfra lausna sem bæði draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og styðja við aðlögun atvinnugreina að breyttum aðstæðum.
Í MeCCAM er áhersla lögð á þróa og innleiða lausnir sem minnka kolefnisspor sjávarútvegsins, á meðan OCCAM beinist að mótvægis- og aðlögunarðagerðum gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga fyrir fiskeldisiðnaðinn í Evrópu. NATALIE verkefnið vinnur að þróun og innleiðingu náttúrumiðaðra lausna (NbS) á strandsvæðum, þar sem áhersla er lögð á að vinna með vistkerfi sem hluta af lausninni. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við sveitarfélög og hagsmunaaðila með áherslu á að efla viðnámsþol bæði vistkerfa og samfélaga.
Aukið gagnsæi með betri gögnum
Vaxandi áhersla er á gagnsæi og mælingum á umhverfisáhrifum í sjávarútvegi og endurspeglast það í verkefnum sem miða að því að bæta aðgengi að áreiðanlegum gögnum og styrkja ákvarðanatöku.
Eitt þeirra verkefna er Sýnileg Sjálfbærni, þar sem verið er að þróa veflægan gagnagrunn sem gerir fyrirtækjum kleift að skrá upplýsingar um veiðar og vinnslu og reikna kolefnisspor fyrir hverja framleiðslulotu. Á sama tíma er unnið að því að byggja upp samræmda og gagnsæa aðferð til að reikna kolefnisspor íslenskra sjávarafurða í verkefninu KÍM- Sjávarafurðir, þær niðurstöður verða birtar opinberlega í ÍSGEM, samhliða næringarupplýsingum, sem eykur samanburðarhæfni og gagnsæi.
Einnig er mikilvægt fyrir íslenska matvælaframleiðslu að sjá hvar hún stendur. Verkefnið Græntól vinnur að því að leggja grunn að notendavænu umhverfisbókhaldi og reiknivél sem gerir kleift að fylgjast með aðfanganotkun, losun og umhverfisáhrifum niður á einstakar vörur og framleiðslustig.

Saman endurspegla þessi verkefni skýra þróun í átt að sjálfbærari, gagnadrifnum og umhverfisvænni sjávarútvegi, þar sem þekking, nýsköpun og gagnsæi eru lykilþættir í mótun framtíðar greinarinnar. Áðurnefnd verkefni eru unnin í góðu samstarfi við íslensk fyrirtæki og stofnanir og má þar m.a. nefna Hafrannsóknastofnun, Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Brim, Samherja, Trackwell, Hampiðjuna, Stiku umhverfislausnir, Eflu, Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins, Bændasamtökin, ásamt fjölda útgerða um land allt.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um öll þau verkefni sem Matís vinnur að, hér: https://matis.is/rannsoknir-og-nyskopun/rannsoknarverkefni/

