ALGAMAT er evrópskt rannsóknarverkefni undir stjórn Nord University í Noregi. Verkefnið er styrkt í gegnum FutureFoodS (The European Partnership for a Sustainable Future of Food Systems), sem er fjármagnað að hluta af Horizon Europe, rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins. Íslensk þátttaka í verkefninu er fjármögnuð af Rannís.
Meginmarkmið ALGAMAT er að þróa sjálfbærar virðiskeðjur fyrir lífmassa úr hafinu með því að nýta þörunga til framleiðslu á nýstárlegum matvörum sem eru bæði næringarríkar og umhverfisvænar. Jafnframt er lögð áhersla á að verkefnið skili umhverfislegum, samfélagslegum og efnahagslegum ávinningi. Sérstök áhersla er lögð á þróun grænmetisborgara með þörungum.
Samhliða þróun matvaranna verður unnið að því að nýta hliðarstrauma frá þörungunum til framleiðslu á lífrænum áburði og vaxtarörvandi efnum fyrir plöntur. Jafnframt verða gerðar greiningar á kostnaði og regluverki og þróuð viðskiptamódel og markaðsáætlanir til að styðja við innleiðingu þessara afurða á evrópskum markaði fyrir jurtapróteinvörur.
Viðhorf neytenda er lykilatriði í verkefninu og því verða matvörurnar þróaðar í nánu samráði við neytendur. Verkefnið byggir einnig á samstarfi við hagsmunaaðila úr allri virðiskeðjunni, allt frá þörungarækt og matvælaframleiðslu til stjórnvalda og neytenda. Þannig er stuðlað að því að niðurstöður verkefnisins verði ekki aðeins tæknilega traustar heldur einnig markaðshæfar og í samræmi við þarfir og væntingar samfélagsins.
Matís ohf. tekur þátt í ALGAMAT og leggur verkefninu til sérþekkingu á vöruþróun, skynmati, matvælatækni og neytendarannsóknum. Þátttaka Matís í verkefninu endurspeglar áherslu fyrirtækisins á sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og þróun nýrra matvæla úr vannýttu hráefni og hliðarstraumum.



