Fóðurfantasía svörtu hermannaflugunnar

Markmið verkefnisins er að afla nýrrar þekkingar um ræktun á svörtum hermannaflugum (BSF( e. Black Soldier Fly)) sem þátt í sjálfbærri fóðurframleiðslu fyrir fiskeldi. Verkefnið mun rannsaka hvernig mismunandi samsetning staðbundinna hliðarafurða, sérstaklega frá vinnslu klóþangs (Ascophyllum nodosum) og hliðarafurða frá matvælaiðnaði (gúrkulauf, hrat frá bjórgerð, brauðmetisafganga o.fl.), hefur áhrif á vöxt, næringargildi og fóðurnýtingu. 

Skref 1.  Fóðurtilraunir BSF → Klóþang + hliðarafurðir frá matvælaiðnaði.

Skref 2. Fóðurtilraunir í laxeldi þar sem BSF lirfur úr skrefi eitt eru notaðar í fóðurblöndu.

Hringrásarhagkerfi er þema verkefnisins þar sem BSF er ætlað að umbreyta vannýttum hliðarafurðum í næringarríkan lífmassa. 

Verkefninu er ætlað að varpa ljósi á áhrif notkunar klóþangs og annarra hliðarafurða í fóður fyrir BSF lirfur.  Jafnframt verður fýsileiki metinn út frá fóðurgildi, öryggis- og fjárhagslegum þáttum með það fyrir augum að nýta afurðir úr slíkri skordýrarækt til fóðurframleiðslu fyrir laxeldi.

Scroll to Top