Iceblue – Náttúrulegt stöðugt blátt litarefni úr örþörungum

Heiti verkefnis: Iceblue

Samstarfsaðilar: VAXA Technologies, DTI, Skarø, Sømods Bolcher

Rannsóknasjóður: Eurostars (Tækniþróunarsjóður)

Upphafsár: 2020

Þjónustuflokkur:

thorungar

Tengiliður

Margrét Geirsdóttir

Verkefnastjóri

mg@matis.is

IceBlue verkefnið stefnir að því að koma á markað öruggu hágæða bláu litarefni sem byggir á örþörungum með miklum litarstyrk og yfirburða stöðugleika til notkunar í matvæli og drykki.

VAXA Technologies mun þróa lífræna ræktun á spriluina  sem gerir mögulega notkun á hinu náttúrulega bláa litarefni í lífrænt vottaðar vörur. Neytendur krefjast náttúrulegra, sjálfbærra hráefna í matvælum sínum, en matvælaframleiðendur og birgjar eiga í erfiðleikum með að útvega slík hráefni þegar val á bláu litarefni er annars vegar.

Að verkefninu koma VAXA Technologies og Matís á Íslandi, ásamt DTI sem er rannsóknastofnun staðsett í Árósum í Danmörku og tveimur litlum fyrirtækjum, Skarø Is er staðsett á Skarø sem er lítil eyja rétt fyrir norðan Fjón og Sømods Bolcher í Kaupmannahöfn.

Hlutverk Matís í verkefninu er að koma að þróun á einangrun á litarefninu sem er í raun prótein, bæði úr hefðbundinni ræktun sem og lífrænni. Einnig mælingar á eiginleikum þess og þróun á notkunarmöguleikum.