Örverur til auðgunar fiskeldisseyru

Heiti verkefnis: Örverur til auðgunar fiskeldisseyru

Samstarfsaðilar: Sjávarklasinn og Samherji Fiskeldi

Rannsóknasjóður: Hringrásarsjóður

Upphafsár: 2022

Tengiliður

Anna Berg Samúelsdóttir

Verkefnastjóri

annab@matis.is

Meginmarkmið verkefnis er að þróa leiðir til þess að meðhöndla hliðarstrauma frá fiskeldi (úrgang) með örverum svo slíkt hráefni verði hentugra sem áburður fyrir landbúnað.

Úrgangur frá fiskeldi er ríkur að næringarefnum (N,P,K) en aðgengi að hráefninu er talsverð hindrun fyrir landbúnaðinn. Hjá fiskeldisfyrirtækjum verða til þúsundir tonna af næringarríkum úrgangi (t.d. saur og dauðfiskur) sem í dag er ónýtt hráefni sem fer því forgörðum. Mikilvægt er að vinna að varanlegum lausnum á því að halda öllu því hráefni sem fellur til sem hliðarafurð hjá fiskeldisfyrirtækjum innan hringrásarhagkerfisins.