Verkefninu var ætlað að treysta upplýsingagjöf um svínakjöt í íslensku Kjötbókinni og íslenska gagnagrunninum um næringargildi (ÍSGEM), hvort tveggja eru mikið notaðar upplýsingaveitur á vefsíðu Matís. Verkefnið hófst árið 2020 og því lauk snemma árs 2021. Styrktaraðili var Framleiðnisjóður landbúnaðarins.
Í skýrslu verkefnisins ( Svínakjöt – Gögn fyrir upplýsingagjöf – Matís (matis.is) ) má finna upplýsingar um skiptingu svínakjöts í kjöt, puru og bein ásamt nauðsynlegum upplýsingum fyrir næringargildismerkingar. Gerðar voru mælingar á orkuefnum, fitusýrum og völdum vítamínum. Hlutfall fjölómettaðra fitusýra var hátt í kjötinu og það reyndist frábær B1-vítamíngjafi og góður B12-vítamíngjafi.