Þarftu ráðgjöf við endurbætur í matvælaframleiðslu?

Hvort sem við einbeitum okkur að landbúnaði, sjávarútvegi, líftækni til matvælaframleiðslu eða fiskeldi þá skiptir máli að hugað sé að umhverfis-, dýravelferðar-, lýðheilsu og matvælaöryggisþáttum þegar framleiða skal matvæli. 

Vinnsluferlar

Tryggðu gæði, hagkvæmni og bætta nýtingu með góðum vinnsluferlum.

Góðir vinnsluferlar stuðla að aukinni verðmætasköpun og stöðugleika afurða við geymslu og flutning.

Gæðamál

Framleiddu örugga hágæða vöru með hjálp Matís.

Matís býður upp á erfða-, örveru- og efnamælingar, uppsetningu gæðahandbókar og ráðgjöf við innra eftirlit.

Lífefnasmiðjan

Hefur lífvirkni verið staðfest og vantar þér áframhaldandi hjálp við vöruþróun?

Til dæmis vörur þar sem ensím eru til notkunar í matvælaframleiðslu, húðvörur með lífvirk efni og fæðubótarefni. Við bjóðum upp á fjölbreyttan tækjakost.

Líftækni

Vantar þig ráðgjöf varðandi líftækni?

Í líftækni er meðal annars unnið að rannsóknunum á lífefnum, lífvirkum efnum og ensímum út frá því markmiði að vinna markaðshæfar afurðir.

Vöruþróun og neytendarannsóknir

Skapaðu vöru þinni forskot með hjálp Matís.

Við bjóðum upp á aðstoð á öllum stigum vöruþróunar, allt frá hugmynd og vinnslu að neytendarannsóknum.

Umhverfismál

Ert þú að kljást við nýjar áskoranir í umhverfismálum?

Í kjölfar vitundarvakningar í umhverfismálum eru flest fyrirtæki farin að huga að umbótum í framleiðsluferli sínu og vöruþróun.

Skynmat

Hvað finnst fólki um vöruna þína?

Skynmat er kerfisbundið mat á lykt, bragði, útliti og áferð matvæla. Í skynmati eru skynfæri mannsins, þ.e. sjón-, lyktar-, bragð-, heyrnar- og snertiskyn notuð til að meta gæði matvæla.

Vilt þú efla þína framleiðslu?

Scroll to Top