Íslenski gagnagrunnurinn um efnainnihald matvæla (ÍSGEM)
Leit í ÍSGEM (Íslenska gagnagrunninum um efnainnihald matvæla) / Search – The Icelandic Food Composition Database
- ÍSGEM gagnagrunnurinn hefur ekki verið uppfærður í heild í um 10 ár. Þó hafa afmarkaðir hlutar hans verið uppfærðir.
- Gögnin sem hér eru birt hvíla á traustum grunni og á það sérstaklega við um óunnar fæðutegundir. Þó þarf að hafa í huga að efnasamsetning matvæla breytist af margvíslegum ástæðum, nefna má áhrif fóðurs, umhverfisþætti, aðferðir við kjötskurð og breyttar uppskriftir unninna matvæla.
- ÍSGEM gagnagrunnurinn hefur verið nýttur við gerð næringaryfirlýsinga fyrir umbúðir matvæla. Í slíkum tilfellum þarf alltaf að vega og meta hvort upplýsingarnar eigi við. Þeir sem markaðssetja matvæli bera alltaf ábyrgð á því að upplýsingar á umbúðum matvæla séu réttar.
- Matís ábyrgist ekki áreiðanleika gagnanna eða notkun þeirra á öðrum vettvangi.
Matís does not guarantee the reliability of the data or its use in other forums.