Verkefni þetta á að svara hvaða áhrif mismunandi hlutfall korns af heildarfóðri holdablendinga hefur á kjötgæði, viðhorf og kaupvilja neytenda þ.e. markaðsstöðu kjötsins í samanburði við kjöt af ungneytum af íslenska kúakyninu.
Markmið
- Afla upplýsinga um áhrif kornhlutfalls á nautakjötsgæði og skynræna eiginleika kjöts af holdablendingum.
- Bera saman kjöt af íslenskum nautum og holdablendingum með tilliti til gæðaeiginleika og skynmatsþátta.
- Afla upplýsinga sem nýtast við fóðurráðgjöf til bænda. Afla upplýsinga um hvort tilefni sé til sérmerkinga á ákveðnu kjöti sem eykur arðsemi bænda og tryggir gæði til neytenda.
- Bæta markaðstöðu og samkeppnishæfni nautakjöts af íslenskum holdablendingum.
- Afla upplýsinga um viðhorf neytenda, kaupvilja og geðjun á kjöti af holdablendingum eftir mismunandi fóðurmeðferðum.
Rannsóknaspurningar
- Hefur mismunandi hlutfall korns af heildarfóðri holdablendinga áhrif á kjötgæði, og þá á hvaða hátt?
- Getum við náð fram meiri arðsemi með því að sanna kjötgæði, sérmerkja afurðir og hækka verð?
Frétt Bændablaðið: Áhrif fóðrunar á gæði kjöts af íslenskum holdanautum