Fréttir

Matís kemur að leit erfðaþátta bógkreppu

Bógkreppa er arfgengur erfðagalli í sauðfé á Íslandi. Gallinn er að öllum líkindum víkjandi, sem þýðir að til þess að lömb fæðist með einkenni bógkreppu þurfa þau að fá gallaða genið frá báðum foreldrum. Þetta hefur í för með sér að erfðagallinn hefur leynst árum saman í íslenska fjárstofninum og skýtur síðan óvænt upp kollinum.

Matís er þátttakandi í verkefni sem miðar að því að finna erfðamark sem hægt væri að nýta til að greina gallann í arfblendnum einstaklingum. Ef slíkt erfðamark fyndist væri hægt að útrýma erfðagallanum úr íslensku fé og tryggja að hann bærist ekki inn á sæðingastöðvar.

Rannsóknaverkefnið er styrkt af Fagráði í sauðfjárrækt, leitt af Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og auk Matís kemur RML að verkefninu.

Sjá nánar á vefsíðu Bændablaðsins með því að smella hér

Mynd: Shutterstock

Fréttir

Erfðabreytingar á örverum

Gestir hlaðvarpsþáttarins Matvælið að þessu sinni eru þeir Björn Þór Aðalsteinsson, verkefnastjóri hjá Matís og Tryggvi Stefánsson, aðstoðarframkvæmdarstjóri hjá Algalíf. Í þættinum fara þeir yfir markaðsleg og rannsóknarleg sjónarmið í tengslum við erfðabreytingar á örverum.

Björn Þór segir okkur frá verkefninu Thermo-Tools sem líftæknihópur Matís hefur verið að vinna að síðastliðin ár. Thermo Tools verkefnið miðar að því að þróa ný tæki til að erfðabreyta hitakærum örverum. Ísland hefur þá sérstöðu að vera með mikið magn af heitum hverum og þar af leiðandi mjög gott aðgengi að hitakærum örverum. Hitakærar örverur lifa við mjög hátt hitastig, allt frá 50-121°C, og liggur vandamálið í því að þau tæki og tól sem alla jafna eru notuð við erfðabreytingar virka ekki við svo hátt hitastig.

Tryggvi Stefánsson hjá Algalíf segir okkur frá framleiðslu þeirra á Astaxanthin og hvernig markaðurinn sem Algalíf starfar á, setur skýra stefnu gegn erfðabreytingum og mikilvægi þess að þeir séu með non-GMO vottun í þeirra framleiðslu.

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni hér að neðan:

Þáttastjórnandi er Ísey Dísa Hávarsdóttir

Ritrýndar greinar

New wave of flavours–On new ways of developing and processing seaweed flavours

Seaweeds have a naturally salty taste owing to their high content of minerals like potassium, besides sodium, which can be utilised as a healthy sodium replacer in food. In addition, some seaweeds contain a range of potential flavour components which can be released by mild processing and used to naturally enhance the flavour of food. In the present study, flavour ingredients from brown seaweed to use as a food component were developed. The work included enzymatic processing, by subsequently applying an alginase (Alg3) and Umamizyme to freeze dried and milled Ascophyllum nodosum and Saccharina latissima seaweed biomass. The chemical composition was determined by means of monosaccharide, polyphenol, and sodium content. Flavour profiles of the produced flavour extracts were evaluated by e-tongue and a cell assay, as well as by sensory panellists. The seaweed extracts were incorporated into food models and their sodium replacing and flavour enhancing properties were objectively evaluated by trained sensory panellists. The aim was to offer innovative processing solutions and new healthy flavour ingredients to meet salt reduction targets and flavour enhancing properties using seaweed. The results obtained flavour ingredients that are richer in umami and salty taste with the potential to replace sodium and create flavour enhancing ingredients for certain food products.

Hlekkur að grein

Ritrýndar greinar

Large differences in carbohydrate degradation and transport potential among lichen fungal symbionts

Lichen symbioses are thought to be stabilized by the transfer of fixed carbon from a photosynthesizing symbiont to a fungus. In other fungal symbioses, carbohydrate subsidies correlate with reductions in plant cell wall-degrading enzymes, but whether this is true of lichen fungal symbionts (LFSs) is unknown. Here, we predict genes encoding carbohydrate-active enzymes (CAZymes) and sugar transporters in 46 genomes from the Lecanoromycetes, the largest extant clade of LFSs. All LFSs possess a robust CAZyme arsenal including enzymes acting on cellulose and hemicellulose, confirmed by experimental assays. However, the number of genes and predicted functions of CAZymes vary widely, with some fungal symbionts possessing arsenals on par with well-known saprotrophic fungi. These results suggest that stable fungal association with a phototroph does not in itself result in fungal CAZyme loss, and lends support to long-standing hypotheses that some lichens may augment fixed CO2 with carbon from external sources.

Hlekkur að grein

Ritrýndar greinar

Going to extremes–a metagenomic journey into the dark matter of life

The Virus-X—Viral Metagenomics for Innovation Value—project was a scientific expedition to explore and exploit uncharted territory of genetic diversity in extreme natural environments such as geothermal hot springs and deep-sea ocean ecosystems. Specifically, the project was set to analyse and exploit viral metagenomes with the ultimate goal of developing new gene products with high innovation value for applications in biotechnology, pharmaceutical, medical, and the life science sectors. Viral gene pool analysis is also essential to obtain fundamental insight into ecosystem dynamics and to investigate how viruses influence the evolution of microbes and multicellular organisms. The Virus-X Consortium, established in 2016, included experts from eight European countries. The unique approach based on high throughput bioinformatics technologies combined with structural and functional studies resulted in the development of a biodiscovery pipeline of significant capacity and scale. The activities within the Virus-X consortium cover the entire range from bioprospecting and methods development in bioinformatics to protein production and characterisation, with the final goal of translating our results into new products for the bioeconomy. The significant impact the consortium made in all of these areas was possible due to the successful cooperation between expert teams that worked together to solve a complex scientific problem using state-of-the-art technologies as well as developing novel tools to explore the virosphere, widely considered as the last great frontier of life.

Hlekkur að grein

Ritrýndar greinar

A fast and inexpensive high-throughput protocol for isolating high molecular weight genomic DNA from lichens

Werth, S., Reynisdóttir, S., Guðmundsson, H. & Andrésson, Ó. S. 2016. A fast and inexpensive high-throughput protocol for isolating high molecular weight genomic DNA from lichens. — Herzogia 29: 610–616. Isolating high molecular weight DNA as required for genomic library preparations and other applications is a challenging task. We optimized a glass-fiber column-based, high throughput DNA isolation protocol to yield comparatively large quantities of high molecular weight, pure DNA; cell lysis based on a CTAB buffer was followed by centrifugation to remove cell debris, binding to a glass-fiber membrane under high concentration of a chaotropic salt (guanidine hydrochloride), followed by two 70 % ethanol washes and elution. This method was utilized successfully on several species of lichenized ascomycetes and on two non-lichenized basidiomycetes. Thus, while developed for lichens, the method is suitable for a range of fungal taxa.

Hlekkur að grein

Fréttir

Skráning er hafin í Græna frumkvöðla framtíðar

Grænir frumkvöðlar framtíðar (GFF) er fræðsluverkefni hjá Matís sem ætlað fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla. Markmiðið er að fræða nemendur um áhrif loftslagsbreytinga á hafið og lífríki þess, sjálfbærni og nýsköpun á nýstárlegan og skemmtilegan hátt. Verkefnið er opið öllum skólum landsins og hefur Matís opnað fyrir skráningar fyrir skólaárið 2022-2023.

Verkefnið fer fram í skólum undir leiðsögn kennara og hægt er að staðfæra verkefnin eftir þörfum hvers og eins skóla. Verkefninu er skipt í fjórar vinnustofur, vettvangsheimsóknir og MAKEathon. Vinnustofurnar innihalda fræðilega umfjöllun og verkefni, vettvangsheimsóknirnar eru í sjávarútvegsfyrirtæki og MAKEathonið er nýsköpunarkeppni

Við hvetjum áhugasama kennara og skóla til að skrá sig til leiks fyrir skólaárið 2022-2023. Skráning er ekki bindandi og því mega þeir sem eru forvitnir endilega skrá sig líka. Einnig er hægt að hafa samband við verkefnastjóra verkefnisins Justine Vanhalst í netfang justine@matis.is ef einhverjar spurningar vakna. Þú finnur Græna frumkvöðla framtíðar einnig á heimasíðunni graenirfrumkvodlar.com og inn á instagram.

Rafrænn upplýsingafundur verður haldinn þann 18. ágúst næstkomandi, klukkan 13-13:30, þar verður farið yfir alla fleti verkefnisins og fólki gefinn kostur á að spyrja spurninga, nánari upplýsingar um fundinn eru sendar við skráningu.

Skráning fer fram með því að smella á skráningarhnappinn hér að neðan:

Hér má sjá stiklu frá sjónvarpstöðinni N4 um Græna frumkvöðla framtíðar, þátturinn kemur út síðar í haust.

Langar þig að lesa meira um Græna frumkvöðla framtíðar? Hér fyrir neðan er viðtal við Katrínu Huldu Gunnarsdóttur sem hefur unnið að verkefninu frá upphafi:

Fréttir

Torula gersveppamjöl í fóðri fyrir Atlantshafslaxa, áhrif á vöxt og örverur í þörmum

Vísindagreinin „Torula yeast in the diet of Atlantic salmon Salmo salar and the impact on growth performance and gut microbiome.“ var birt  af vísindatímaritinu Scientific Reports nú á dögunum, sem gefið er út af Nature. Rannsökuð voru áhrif Torula gersveppamjöls á vaxtarafköst og þarmaörverur eldislaxa, þar sem hefðbundnum próteinum í fóðri var skipt út fyrir gersveppamjöl. Niðurstöðurnar kunna að koma á óvart.

Með örum vexti laxeldis eykst þörfin á að finna og þróa viðeigandi staðgengil fyrir hefðbundna próteingjafa í fóðri. Torula gersveppamjöl (Candida utilis) hefur verið skilgreint sem nýprótein (e. Alternative Protein) sem getur komið í stað hefðbundins próteins í fóðri. Hægt er að rækta gersveppinn á sjálfbæran hátt. Í þessari rannsókn voru skoðuð áhrif gersveppamjöls á vaxtarafköst og þarmaörverur í ferskvatns Atlantshafslöxum. Prófað var fóður sem innihélt prótein úr sjávarfangi, t.d. fiskimjöl, sem og blandað sjávar- og plöntuprótein þar sem hefðbundnum próteinum var skipt út fyrir aukið magn af gersveppamjöli (0%, 10%, 20%).

Þessi rannsókn sýndi að á vaxtarstigi laxa í ferskvatni, getur gersveppamjöl að hluta komið í stað hefðbundinna próteina í samsettu fóðri, en að ákjósanlegasta magn inntöku er háð heildarsamsetningu fóðursins og tegundum próteina sem verið er að skipta út. Í fóðrinu sem innihélt prótein úr sjávarfangi leiddi þessi rannsókn í ljós að 20% gersveppamjöl má setja í fóðrið án þess að breyta vaxtarafköstum og með hugsanlegum ávinningi fyrir örverusamfélagið í þörmum eins og aukningu á sumum mjólkursýrubakteríum.

Til samanburðar, í fóðrinu sem sameinar prótein úr sjávarfangi og plöntuprótein, styður 10% innihald af gersveppamjöli betri vaxtarafköst en hefðbundin prótein. Við hærra inntökugildi, 20%, var enginn ávinningur af vexti og hugsanlega skaðlegar breytingar á örverum í þörmum, svo sem fækkun mjólkursýrugerla og aukið magn baktería sem tengist hægari vexti í öðrum tegundum laxfiska.

Kynntu þér nánar þessar áhugaverðu niðurstöður og lestu vísindagreinina í heild sinni hér

Birgir Örn Smárason fagstjóri hjá Matís og Sigurlaug Skírnisdóttir verkefnastjóri hjá Matís, eru í hópi höfunda greinarinnar, fyrir nánari upplýsingar er hægt að ná í þau í eftirfarandi netföng birgir@matis.is og sigurlaug.skirnisdottir@matis.is

Fréttir

Grænir frumkvöðlar framtíðar

Tengiliður

Katrín Hulda Gunnarsdóttir

Verkefnastjóri

katrinh@matis.is

Grænir frumkvöðlar framtíðar (GFF) er fræðsluverkefni hjá Matís sem hóf göngu sína í júní 2021. Hlutverk verkefnisins er að fræða íslenska grunnskólanemendur um loftslags- og umhverfismál, og er verkefnið styrkt af Loftslagssjóði. Katrín Hulda Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá Matís hefur unnið að verkefninu ásamt Justine Vanhalst verkefnastjóra hjá Matís. Katrín deilir hér með okkur ferðalagi verkefnisins frá upphafi.

„Það var ánægjulegt að sjá hve áhugasamir og í raun vel að sér krakkarnir voru um áhrif loftslagsbreytinga. Það varð fljótlega ljóst að þetta er málefni sem brennur á þeim og þau eru mjög meðvituð um þá umræðu sem er að eiga sér stað í þjóðfélaginu um þessar mundir.“

Afhverju Grænir frumkvöðlar framtíðar?

„Ég var nýbúin að klára kennaranám þar sem ég hafði lært ýmis hugtök eins og lausnaleitarnám, nemendamiðað nám og leikjavæðing. Þegar ég sá auglýst starf við að vinna í GFF þá fannst mér það henta fullkomlega. Það bæði passaði vel að þeirri hugmyndafræði sem ég vildi tileinka mér sem kennari, tók á málefnum sem mér þykja mikilvæg og myndi gefa mér reynslu í að búa til námsefni. Ég sótti því um og hef verið hér síðan.“ segir Katrín Hulda.

Ekki þarf að leita langt yfir skammt til að hafa áhrif

„Markmið GFF er að vekja áhuga og efla þekkingu grunnskólabarna á loftslags- og umhverfismálum, nýsköpun og sjálfbærri auðlindanýtingu í þeim tilgangi að virkja þau til baráttunnar gegn loftslagsvánni og hvetja þau til grænnar nýsköpunar.“

„Þetta var gert með því að veita nýstárlega og áhugaverða fræðslu og virkja þau í hugmyndavinnu og nýsköpun í samvinnu við fyrirtæki í heimabyggð með sérstaka áherslu á umhverfisáhrif og auðlindanotkun. Með því var ætlunin að efla tengsl milli aðila innan heimabyggðar nemenda og sýna þeim að oft þarf ekki að leita langt yfir skammt til að geta haft áhrif.“ 

„Með nýstárlegri fræðslu var aðallega verið að hugsa um að gera þetta spennandi, áhrifamikið og valdeflandi fyrir krakkana. Það hefur svo þau áhrif að minnka loftslagskvíða. Til þess að berjast gegn loftslagskvíða meðal barna og ungmenna hefur m.a. verið mælt með því að segja þeim satt, gefa erfiðum tilfinningum rými og leyfa þeim að taka þátt í baráttunni. Höfundar námsefnis GFF höfðu þetta í huga við sín skrif. “ útskýrir Katrín Hulda.

Áskoranir í kjölfar Covid 19 voru leystar með útsjónarsemi

„Markmiðunum var náð og gekk verkefnið betur en við þorðum að vona. Auðvitað breyttist skipulagið aðeins vegna Covid-19 faraldursins, en skólarnir voru ótrúlega útsjónarsamir í að redda málunum. Sem dæmi um það má nefna að á Sauðárkróki var ekki hægt að heimsækja fyrirtækin vegna heimsóknabanns, vegna Covid fjöldatakmarkana. Þess í stað fengu nemendur heimsóknir frá fyrirtækjunum, þar sem sagt var frá starfsemi þeirra. Það voru kynningar, myndbönd og ýmislegt fleira og þótti takast mjög vel til.“

Nesskóli
Árskóli

„Endurgjöf frá kennurum og öðrum þátttakendum kom mjög vel út, og var mjög dýrmæt við að betrumbæta verkefnið fyrir næstu umferð. Það má líka nefna að mikill skortur er á námsefni um loftslags- og umhverfismál fyrir þennan aldurshóp og því ákveðið skarð sem verkefnið fyllir upp í.“ segir Katrín Hulda.

Kom eitthvað nýtt eða jafnvel óvænt í ljós?

„Það var skemmtilegt að sjá hversu hæfir krakkarnir eru í nýsköpun. Ekki nóg með að þeir koma með stórsnjallar hugmyndir heldur sýndu þeir vönduð vinnubrögð og afrekuðu margt á afar stuttum tíma þegar MAKEathonin áttu sér stað. MAKEathon er nýsköpunarkeppni þar sem keppst er um að útbúa bestu lausnina á tilteknu vandamáli. Í okkar tilfelli fóru keppnirnar fram yfir tvo daga og gerðu krakkarnir frumgerðir, líkön eða veggspjöld af lausnum sínum á umhverfisvandamálum.

Það var ánægjulegt að sjá hve áhugasamir og í raun vel að sér krakkarnir voru um áhrif loftslagsbreytinga. Það varð fljótlega ljóst að þetta er málefni sem brennur á þeim og þau eru mjög meðvituð um þá umræðu sem er að eiga sér stað í þjóðfélaginu um þessar mundir. Þar að auki ríkti mikill baráttuvilji meðal þeirra en þeim finnst þetta vera stærsta vandamálið sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir.“ segir Katrín Hulda.

„Hægt var að staðfæra verkefnin eftir þörfum hvers og eins skóla. Kennararnir tóku verkefnin og gerðu þau að sínum eigin, til dæmis tengdu kennarar í Grunnskóla Bolungarvíkur námsefnið við sögu Bolungarvíkur og kennarar á Sauðárkróki nýttu tækifærið og notuðu eina tilraunina til að kenna nemendum sínum skýrslugerð.“

„Það var líka flott að sjá hve valdeflandi MAKEathonið var fyrir nemendur. Það að fá tækifæri til að glíma við „alvöru vandamál“, þ.e. sömu vandamál og fullorðna fólkið í þeirra nærumhverfi glímir við, virtist gefa þeim nýjar forsendur og metnað. Það skipti þau miklu máli að þetta væri ekki bara eitthvað skólabókadæmi sem væri svo stungið ofan í skúffu og aldrei gert neitt meira með.“

Fyrsta ár verkefnisins lauk með glæsibrag og áhrifin leyna sér ekki

„Fyrsta ári verkefnisins, af vonandi mörgum, lauk í vor með glæsibrag. Landskeppni MAKEathons, nýsköpunarkeppni GFF var haldin og úrslitin kynnt í Nýsköpunarvikunni. Allir þátttakendur voru hæstánægðir og virtist mikill vilji fyrir því að halda verkefninu áfram.

Áhrifin hafa fyrst og fremst verið á nemendurna. Þeir hafa lært mikið, bæði fræðilega, þ.e. um loftslagsbreytingar og áhrif þeirra, en líka praktískt, þ.e. vinnubrögð. Aukinn skilningur á eðli loftslagsbreytingar og áhrifum þeirra m.a. á þeirra nærumhverfi hefur náðst. Sjónarhorn krakkanna á heimabæ sinn breyttist fyrir vikið, sem og á þau fyrirtæki sem starfa þar. Þau lærðu að sjá tækifæri í sínu nærumhverfi. Þar komu FabLab smiðjurnar og Djúpið Frumkvöðlasetur sterk inn, en þeirra sérþekking er m.a. að kenna krökkum nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi.

Kennararnir hafa einnig fengið ný vopn í kennslufræði vopnabúrið sitt, bæði hvað varðar fræðilega þekkingu en líka nýjar kennsluaðferðir. Vonandi munu þessar aðferðir nýtast þeim áfram, hvort sem þeir kenni umhverfisfræði eða einhverjar aðrar greinar. Svo má ekki gleyma þeim áhrifum sem verkefnið hefur haft á okkur sjálfar. Við erum fullar innblásturs og viljum gjarnan taka nemendurna, og sköpunargleði þeirra, okkur til fyrirmyndar.“ segir Katrín Hulda.

Árskóli
Grunnskóli Bolungarvíkur
Nesskóli

Hver eru næstu skref?

„Námsefnið sjálft verður gert aðgengilegt á netinu eins og samið var um. Það væri þó gaman að geta gefið það almennilega út, þá með myndskreytingum og fallegri framsetningu. Ætlunin er að sækja um styrk fyrir slíku.“

„Hvað varðar næsta skólaár þá er búið að opna fyrir skráningu skóla sem vilja taka þátt. Bæði elstu bekkir grunnskóla og framhaldsskólar geta tekið þátt. Hlutverk Matís er að vera þeim innan handar, en námsefnið er allt saman til og því ætti ekki að þurfa mikil afskipti þar til að MAKEathonum kæmi. Opnað hefur verið fyrir skráningu og lýkur henni 1. september. Áhugasamir fá stutta google-könnun sem þeir fylla út.“

Þeir sem vilja kynna sér verkefnið enn fremur eða nálgast kennsluefni er bent á heimasíðu verkefnisins: https://graenirfrumkvodlar.com/. Verkefnið heldur einnig úti instagram síðu með ýmsum fróðleik og myndum: https://www.instagram.com/gff_matis/.

Sérstakar þakkir til samstarfsaðila: Stefán Þór Eysteinsson hjá Matís, Gunnar Þórðarson hjá Matís, Ragnhildur Friðriksdóttir fyrrum starfsmaður Matís, Árskóli Sauðárkróki, Nesskóli Neskaupstað, Grunnskóli Bolungarvíkur, Djúpið Frumkvöðlasetur Bolungarvík (Gunnar Ólafsson), FabLab Ísafjörður, FabLab Neskaupstaður, FabLab Sauðárkrókur, N4 Sjónvarpsstöð, Cambridge University. Dögun rækjuvinnsla, FISK Seafood, ArcticFish og Eskja.

Skráning er hafin

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Græna Frumkvöðla Framtíðar fyrir næsta skólaár. Verkefnið hentar elstu bekkjum grunnskóla og grunnáföngum framhaldsskóla. Fyrir frekari upplýsingar geta áhugasamir haft samband við verkefnastjóra verkefnisins, Justine Vanhalst í netfangið Justine@matis.is. Skráning fer fram með því að smella á hnappinn hér að neðan:

Fréttir

Rannsóknir á hrossakjöti

Hrossakjöt er takmörkuð auðlind og mikil gæðavara. Liggja hér tækifæri í vöruþróun og markaðsetningu sem ekki er verið að nýta?

Í þessum þætti heyrum við í Evu Margréti Jónudóttur sem er sérfræðingur hjá Matís, en hún hefur gert fjölbreyttar rannsóknir á hrossakjöti. Eva hefur meðal annars kannað viðhorf og kauphegðun íslenskra neytanda og rannsakað kjötgæði í folaldakjöti. Eva segir skemmtilega frá niðurstöðum þeirra rannsókna og það er einstaklega áhugavert að heyra hana greina frá niðurstöðum gæða og geymsluþols hrossakjöts.

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni hér að neðan:

Þáttastjórnandi er Ísey Dísa Hávarsdóttir

IS